Ólafur Kristjánsson í september er kryptónít KR-inga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. september 2018 12:30 FH-ingar fagna einu marka sinna í gær. Vísir/Daníel
Ólafur Kristjánsson hefur þrisvar sinnum burstað KR-inga í septembermánuði en stórsigurinn í gær hélt lífi í Evrópudraumum FH-liðsins. FH náði KR að stigum í baráttunni um fjórða sætið og minnkaði markamuninn á milli liðanna um átta mörk. Hvert mark FH-liðsins var því í raun tveggja marka virði. Það er greinilega ekki gott fyrir KR-inga að mæta liði Ólafs Kristjánssonar í september. FH vann 4-0 stórsigur á KR í lokaleik 19. umferðar Pepsi-deildarinnar í gær og það er ekki í fyrsta sinn sem lið Ólafs Kristjánssonar rassskellir Vesturbæjarliðið í þessum mánuði. KR hefur einu sinni áður tapað svona stórt í tólf liða deild og það var í leik á móti Breiðabliki í september 2012. Þjálfari Blika í þeim leik var einmitt Ólafur Kristjánsson, núverandi þjálfari FH-liðsins. Breiðablik vann þá 4-0 sigur á KR-vellinum og einn markaskorara Blika var Kristinn Jónsson sem spilaði með KR-liðinu í Kaplakrika í gær. Ólafur Kristjánsson er líka í hópi þeirra fimm þjálfara sem hafa náð að vinna þriggja marka sigur á KR í tólf liða efstu deild. Sá sigur kom einnig í september en Blikar unnu þá 3-0 sigur á KR 19. september 2013. Ólafur hefur nú þrisvar sinnum unnið þriggja marka eða stærri sigur á KR í 12 liða efstu deild eitthvað sem enginn annar þjálfari hefur náð oftar en einu sinni og flestir þjálfarar aldrei. Það er jafnvel hægt að ganga svo langt að halda því fram að Ólafur Kristjánsson sé kryptónít KR-inga í Pepsi-deildinni. Kryptónít er eina efnið sem bítur á Súperman í samnefndum sögum. Ólafur hefur alls stýrt liði fjórum sinnum á móti KR í september í Pepsi-deildinni frá árinu 2010 og lið hans hefur unnið þá alla með tveimur mörkum eða meira. Markatalan er 14-1 liðum Ólafs í vil.Ólafur Kristjánsson.vísir/báraStærstu töp KR í Pepsi-deildinni í tólf liða deild:-4 0-4 á móti Breiðabliki 16. september 2012 (Ólafur Kristjánsson þjálfaði lið Blika) 0-4 á móti FH 2.september 2018 (Ólafur Kristjánsson þjálfaði lið FH)-3 0-3 á móti Fram 21. júní 2009 (Þorvaldur Örlygsson þjálfaði lið Fram) 0-3 á móti Breiðabliki 19. september 2013 (Ólafur Kristjánsson þjálfaði lið Blika) 0-3 á móti Val 7. júní 2015 (Ólafur Jóhannesson þjálfaði lið Vals) 0-3 á móti Stjörnunni 20. september 2015 (Rúnar Páll Sigmundsson þjálfaði lið Stjörnunnar) 0-3 á móti ÍBV 9. september 2017 (Kristján Guðmundsson þjálfaði lið ÍBV)Leikir KR í september á móti liði undir stjórn Ólafs Kristjánssonar frá 2010: 16. september 2010: Breiðablik vann 3-1 útisigur á KR 16. setpember 2012: Breiðablik vann 4-0 útisigur á KR 19. september 2013: Breiðablik vann 3-0 heimasigur á KR 2. september 2018: FH vann 4-0 heimasigur á KRSamtals: 4 leikir 4 sigrar 14 mörk skoruð 1 mark fengið á sig +13 í markatölu 3 leikir haldið hreinu
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Magnað heimsmet í hálfu maraþoni Sport Pat Vellner valdi að fara sömu leið og Anníe Mist Sport Ekki sama hvort það er „fuck off“ eða „fuck you“ Fótbolti Armstrong til Man United frá PSG Enski boltinn Sektar eigin leikmenn eftir tapið gegn Víkingum Fótbolti Leeds mun banna stuðningsfólk sem syngur and-palestínska söngva Enski boltinn Nistelrooy og Keown grófu stríðsöxina og slógu á létta strengi Enski boltinn Dagskráin í dag: Fótbolti, körfubolti og keila Sport Martin í hópnum sem gæti skilað Íslandi á EM Körfubolti Amad líklega frá út tímabilið Enski boltinn Fleiri fréttir KR lánar Óðinn til ÍR Sjáðu fimm marka flengingu frá meisturunum Gylfi fyrirliði í jafntefli á Akranesi Víkingar með lægra tilboð en „grín“ í Gylfa Valur og Breiðablik í góðum gír í Lengjubikar kvenna Devine til Blika og má spila í kvöld Fimmtán milljón króna hagnaður hjá KSÍ FH safnaði yfir tveimur milljónum fyrir Píeta samtökin Grótta laus úr banni FIFA Þorri mættur í Stjörnuna og ætlar að vinna titla Herra Fjölnir tekur við Fjölni „Púsluspilið gekk ekki upp“ Víkingar hættir í Lengjubikarnum Ætla að spila í Grindavík: „Ábyrgð mín að koma liðinu heim“ Sif Atla ráðin framkvæmdastjóri Leikmannasamtaka Íslands Andri Rúnar með þrennu fyrir Stjörnuna í kvöld Þorri sagður á heimleið: „Verð þakklátur alla ævina“ Úlfur óvænt rekinn frá Fjölni Framarar fundu strax leið úr skammarkróknum Tvær þrennur í níu marka stórsigri Hrannar með þrennu gegn Þór Sjáðu sigurmark Örvars og önnur mörk úr Lengjubikarnum Íhugaði að lauma mynd af húsinu í myndaalbúm fjölskyldunnar ÍR vann níu FH-inga og Valskonur í stuði Hituðu upp fyrir Grikkina í snjónum: Danna þema hjá Víkingum Martraðarbyrjun Róberts í Víkingstreyjunni Einar heim í Hafnarfjörðinn Húsvíkingurinn frá KR til Þróttar Framarar lausir við Frambanann Cousins búin að semja við Þrótt Sjá meira