Valur var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða Ragnars og til að greiða fjórum börnum Ragnars þrjár milljónir króna hverju í miskabætur. Saksóknari fór fram á sextán ára fangelsi yfir Val og börn Ragnars tíu milljónir króna hvert.
Valur bar við minnisleyfi fyrir dómi. Hann segist hafa vaknað snemma eftir mikla drykkju um nóttina og komið að bróður sínum látnum í þvottahúsinu. Hann hafi um leið hringt í Neyðarlínuna.
Í dómi héraðsdóms segir að Valur hafi borið öll þau einkenni að hafa lent í átökum enda hafi hann bæði verið með áverka á sér auk þess sem blóð úr Ragnari fannst á honum. Ekkert kom fram við aðalmeðferð málsins sem gaf til kynna að einhver annar hefði átt hlut að máli. Því hafi það verið aðalatriði hjá dómstólnum að meta hvort Valur hafi ætlað að drepa bróður sinn.
Enginn til frásagnar
Sannað þótti að Valur hefði slegið bróður sinn ítrekað með hnefa í höfuð og líkama. Þá bentu rannsóknargögn til þess að hann hefði annaðhvort sparkað eða trampað á höfði hans og líka. Hins vegar benti ekkert til þess að valur hefði notast við einhvers konar vopn eða áhald.Dómurinn nefnir að ekki sé hægt að líta fram hjá því að ölvunarástand Ragnars hafi at mati réttarmeinafræðings átt þátt í dauða hans. Á móti því komi að stunga rifbeina í lifur hefði að öllum líkindum ein og sér getað valdið dauða hans hefði hann ekki fljótlega komist undir læknishendur.
„Þar sem enginn er til frásagnar um þau atvik sem leiddu til átaka milli þeirra bræðra er ekkert hægt að fullyrða um upptökin að þeim,“ segir í dómnum.
Fyrir liggi að Valur hafi átt það til að beita ofbeldi undir áhrifum áfengis. Þá eigi hann sömuleiðis sögu um óminni eftir neyslu áfengis. Sú háttsemi að slá eða sparka í höfuð bróður síns hafi að sönnu verið hættuleg „en ekki verður talið að honum hafi verið ljóst að langlíklegast væri að afleiðingarnar yrðu þær að hann myndi lenda í bráðri andnauð vegna banvænnar innöndunar magainnihalds og láta lífið af þeim sökum.“
Allur vafi sakborningi í hag
Þá yrði heldur ekki talið að Val hafi mátt vera ljóst að langlíklegast væri að högg hans eða spörk í síðu Ragnars myndu leiða til þess að rifbein styngjust í lifur hans með lífshættulegum afleiðingum.Hafa beri í huga að allan vafa í þessum efnum ber að skýra sakborningi í hag. Að mati dómsins hefur því ekki tekist að sanna að fyrir ákærða hafi vakað að ráða bróður sínum bana.
Af þeim sökum var hann ekki sakfelldur fyrir manndráp heldur stórhættulega og vísvitandi líkamsárás sem leiddi til dauða.
Hvorki saksóknari né verjandi Vals hafa tekði ákvörðun um hvort dómnum verði áfrýjað. Valur sætir gæsluvarðhaldi á meðan áfrýjunarfresti stendur.