Lífið

Októberspá Siggu Kling – Sporðdrekinn: Það eru að koma inn í líf þitt breytingar

Sigga Kling skrifar
Elsku Sporðdrekinn minn, þú ert eins og hús fullt af herbergjum, en ég er alveg viss um að þú hefur ekki skoðað inn í öll herbergin og séð hvað þú hefur, því ef þú værir hús í raun og veru þá myndu allir vilja búa þar.

Það eru að koma inn í líf þitt breytingar sem þú mátt alveg vera tilbúinn í, ný vinna, breyting á vinnuumhverfi eða þú hefur byrjað í nýjum skóla svo þú átt eftir að sjá lífið í öðru ljósi, það verður einfaldara, skemmtilegra og litríkara því þú ert búinn að fara yfir erfiðasta hjallann á árinu.

Talan fimm er sterkust á árinu sem gefur þér meiri möguleika á ferðalögum og spennandi verkefnum svo bjartsýni verður aðaleinkenni þitt á næstu mánuðum. Erfið ástarsambönd eyðast og hverfa og góð sambönd eflast og gefa þér betra líf.

Njóttu þess að vera til og notaðu orðið ég elska meira, eins og til dæmis ég elska vini mína, elska landið og ég elska sjálfan mig, því þú færð meira af því sem þú elskar og sérstaklega þegar þú segir það upphátt.

Ég hef skrifað heila bók um akkúrat þetta sem heitir Orð eru álög, og nú ertu að fara í betri tíð og á betri tíðni sem færir þig nær því sem þú þráir og er það ekki bara hamingjan! Til þess að þér takist þetta þarftu að gleyma gömlum vonbrigðum sem eru að sjálfsögðu úr fortíðinni, en hún er búin og framtíðin er NÚNA.

Frægir Sporðdrekar: Birkir Már Sævarsson landsliðsmaður, Dísa í World Class, Helga Braga Jónsdóttir leikkona, Björk Guðmundsdóttir söngkona, Scarlett Johansson leikkona, Whoopie Goldberg leikkona, Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sjónvarpskona, Emmsjé Gauti rappari, Björk, Indira Ghandi, Karl bretaprins, Hillary Clinton, Leonardo DiCaprio, Magnús Scheving, Steingrímur Sævarr Ólafsson fjölmiðlaráðgjafi, Guðný Hrefna Sverrisdóttir, flugfreyja og gourmé kokkur, Hörður Ágústsson Macland snillingur, Indira Gandhi, Guðrún Ásmundsdóttir og Calvin Klein.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.