Leikjavísir

Birta annað sýnishorn úr Red Dead Redemption 2

Samúel Karl Ólason skrifar
Arthur Morgan á farandsfæti.
Arthur Morgan á farandsfæti.
Rockstar Games, framleiðendur Grand Theft Auto leikjanna, hafa birt nýtt myndband úr leiknum Red Dead Redemption 2. Að þessu sinni er farið yfir hvernig verkefni leiksins virka og hvað spilarar geta tekið sér fyrir hendur, sem að mestu leyti virðist snúast um að ræna og ruppla í Vilta vestrinu.

Söguhetja leiksins er Arthur Morgan en hann er útlagi og getur hann rænt banka, lestar, vagna og heimili fólks. Þá þarf hann að eiga við laganna verði og ýmsilegt fleira.

Red Dead Redemption kemur út þann 26. október.


Tengdar fréttir

Nýtt sex mínútna sýnishorn úr Red Dead Redemption

Leikjafyrirtækið Rockstar, sem er hvað þekktast fyrir Grand Theft Auto leikjanna, hefur birt sýnishorn er leiknum Red Dead Redemption 2 sem gefinn verður út þann 26. október næstkomandi.

Stefnir í fínasta tölvuleikjahaust

Nú þegar sumrinu fer að ljúka er þörf að huga að því hvort ekki sé réttast að eiga nokkra frídaga inni fyrir haustið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.