Lífið

Segir það „tóma tjöru“ að Beckham-hjónin hafi sýnt íbúðum á Hafnartorgi áhuga

Birgir Olgeirsson skrifar
Talsmaður Björgólfs Thors segir fregnir af meintum áhuga Beckham-hjóna á íbúð í Hafnartorgi rangar.
Talsmaður Björgólfs Thors segir fregnir af meintum áhuga Beckham-hjóna á íbúð í Hafnartorgi rangar. Vísir/Vilhelm/Getty
Beckham-hjónin eru ekki að leita að íbúð hér á landi og hafa ekki skoðað íbúð á Hafnartorgi í Reykjavík. Þetta segir Ragnhildur Sverrisdóttir, talskona fjárfestisins Björgólfs Thors Björgólfssonar.

Greint var frá því á vef Smartlands Mörtu Maríu í gær að bresku hjónin Victoria og David Beckham hefðu skoðað íbúðir á nýbyggðu Hafnartorgi í Reykjavík.

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason tók fréttina upp og spurði sig hvort að flugufótur væri fyrir þessum tíðindum eða hvort einungis væri um orðróm að ræða til að reyna að glæða áhuga á dýrum fasteignum sem ekki ganga út?

Ragnhildur Sverrisdóttur lagði orð í belg í athugasemdakerfi undir færslu Egils þar sem hún sagði það vera undarlega markaðssetningu að skrökva íbúðakaupum upp á þekkt fólk í þeirri von að eftirspurnin aukist.

Björgólfur Thor Björgólfsson.Fréttablaðið/GVA
„Þetta er bara algjört kjaftæði, ég veit það fyrir víst,“ segir Ragnhildur í samtali við Vísi um þessa frétt af meintum áhuga Beckham-hjónanna.

„Ég hef fengið það staðfest að þetta er tóm tjara. Þau eru ekki að leita sér að íbúð hér og hafa ekki skoðað íbúðir í þessu húsi, eða aðrar íbúðir hér. Þau er ekki að leita sér að íbúð hér á landi.“

Vinátta Björgólfs Thors og David Beckham er vel þekkt en fjölskyldur þeirra hafa meðal annars verið saman í fríi í Bandaríkjunum.

Spurð hvort að Ragnhildur hefði fengið það staðfest frá Björgólfi að Beckham-hjónin hafi ekki skoðað íbúðir á Hafnartorgi eða veitt þeim áhuga á nokkurn hátt, svarar hún því játandi.

Þess ber að geta að fréttin um meintan áhuga Beckham-hjónanna er ekki lengur aðgengileg á vef Smartlands Mörtu Maríu.


Tengdar fréttir

Björgólfur og Beckham eru góðir vinir

Björgólfur Thor Björgólfsson er eini Íslendingurinn á Forbes listanum yfir ríkustu einstaklingana í heiminum, en hann er í 1121. sæti.

David Beckham dásamaði Björgólf Thor á sérsmíðuðu mótórhjóli

Athafnamaðurinn Björgólfur Thor Björgjólfsson og knattspyrnukappinn fyrrverandi David Beckham skelltu sér saman á mótórhjól í Bandaríkjunum á dögunum. Birti Beckham myndband á Instagram-reikningi sínum þar sem hann dásamaði Björgólf sem þeystist um á sérsmíðuðu mótórhjóli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.