Bíó og sjónvarp

Teymi grínista og leikara sér um Skaupið í ár

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Arnór Pálmi Arnarsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Jón Gnarr, Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi), Katrín Halldóra Sigurðardóttir og Katla Margrét Þorgeirsdóttir.
Arnór Pálmi Arnarsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Jón Gnarr, Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi), Katrín Halldóra Sigurðardóttir og Katla Margrét Þorgeirsdóttir. Mynd/RÚV
Höfundar Áramótaskaupsins eru Ilmur Kristjánsdóttir, Jón Gnarr, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Sveppi og Arnór Pálmi Arnarson sem einnig leikstýrir, annað árið í röð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá RÚV.

Arnór Pálmi, sem hefur sinnt ýmsum verkefnum fyrir RÚV í gegnum tíðina, segist vera hæstánægður með hópinn og bætir við að handritavinnan gangi vel.

„Ilmur, Sveppi, Katla og Jón eru náttúrulega máttarstólpar í gríni á Íslandi en svo er Katrín Halldóra að stíga sín fyrstu skref í að skrifa grín fyrir sjónvarp og passar frábærlega inn í þennan hóp. Það er svo sem af nógu að taka í ár en allt tal um að Skaupið skrifi sig sjálft er ekki rétt. Þetta kostar hellings vinnu, marga kaffibolla, nokkur rifrildi og fullt af Lindu kaffisúkkulaði. Það er nefnilega hefð hjá okkur að kaupa eitt stykki af því eftir hádegismat og deila. Það er líka svo hentugt því það eru einmitt akkúrat sex molar í því,“ er haft eftir Arnóri Pálma í tilkynningu.

Tökur á Skaupinu hefjast um miðjan nóvember og mun Glassriver sjá um framleiðsluna líkt og í fyrra. Framleiðendur Skaupsins eru Andri Ómarsson og Arnbjörg Hafliðadóttir ásamt Herði Rúnarssyni, Baldvini Z og Andra Óttarssyni. 

Í fyrra var skaupið í höndum grínistanna Önnu Svövu Knútsdóttur, Bergs Ebba Benediktssonar, Dóra DNA, Sögu Garðarsdóttur og Dóru Jóhannsdóttur.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.