Lífið

Meghan átti í mestu vandræðum með að hemja hláturinn

Atli Ísleifsson skrifar
Meghan, hertogaynja af Sussex.
Meghan, hertogaynja af Sussex. Getty/Samir Hussain

Meghan Markle, hertogaynja af Sussex, átti í mestu vandræðum með að hemja hláturinn þegar hún fylgdist með sýningu skóladrengja á Tonga í dag.

Atvikið náðist að sjálfsögðu á myndband og má sjá að Meghan var ekki fjarri því að tárast úr hlátri. Ekki liggur fyrir hvað henni þótti svo broslegt.

Meghan og Harry Bretaprins hafa verið á ferð um Eyjaálfu síðustu daga. Fyrr í mánuðinum var greint frá því að Meghan væri með barni, en þau Harry gengu í hjónaband síðasta vor.

Á síðasta ári vakti það sömuleiðis athygli þegar Camilla Parker-Bowles, eiginkona Karls Bretaprins, tengdaföður Meghan, átti í vandræðum með hláturinn þegar þau fylgdust með söngatriði kanadískra frumbyggja í bænum Iqaluit.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.