Sverrir Þór: Reggie er alvöru töffari Bjarni Þórarinn Hallfreðsson í Blue-höllinni skrifar 25. október 2018 22:19 Sverrir Þór var kampakátur með sigur sinna manna í kvöld
Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Keflvíkinga var kampakátur eftir sigur sinna manna gegn sterku liði Stjörnunnar í kvöld. Keflavík var undir allan leikinn en komst yfir á lokamínútu leiksins. „Tilfinningin er mjög góð. Við vorum í erfiðleikum. Stjarnan gerði virkilega vel og voru mjög sterkir og skipulagðir. Við áttum í erfiðleikum með að skora hjá þeim. Það sem bjargaði þessu var að vörnin okkar var ágæt þannig við misstum þá aldrei langt fram úr. Svo í restina förum við loksins að taka af skarið og þá fór að opna aðeins meira fyrir okkur. Svo datt þetta með okkur undir lokinn, Reggie setur þarna svaka þrist. Frábær sigur á sterku liði. Þetta var langt frá því að vera sannfærandi hjá okkur.“ Leikurinn í kvöld var ekki besti leikur Keflvíkinga í vetur, en það sýnir kannski styrkleika þeirra að þeir sigra Stjörnuna, sem margir spá að verði í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í vetur. „Þetta var alls ekki góður leikur, en það er auðvitað því að Stjarnan var að spila mjög vel. Það gerði okkur erfitt fyrir. Við sjáum það að með því að hanga inn í leikjum með að spila ekkert alltof vel, og koma svo með alvöru frammistöðu, þá getum við ennþá unnið leikina. Þessi deild er fáránlega sterk og jöfn.“ Sigur Keflavíkur í kvöld var svipaður og sigur þeirra gegn KR fyrr í þessum mánuði. Þá var liðið undir allan leikinn og Reggie Dupree steig upp á ögurstundu eftir annars dapran leik og setti niður risaþrista. Sama var upp á teningnum í kvöld, þegar Reggie setti niður þriggja stiga körfu og kom Keflvíkingum yfir. „Þetta er ekkert smá mikilvægt. Reggie er frábær leikmaður og mikilvægur fyrir okkur. En stundum gerir hann ekki neitt sóknarlega sem er svo skrýtið því hann er svo góður sóknarlega. Hann var ekki búinn að skora neitt en var alltaf að fara taka þetta skot. Hann er alvöru töffari.“
Dominos-deild karla Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira