Lífið

Sækir um einkarétt á nafninu Hailey Bieber

Birgir Olgeirsson skrifar
Hailey Baldwin og Justin Bieber.
Hailey Baldwin og Justin Bieber. Vísir/Getty
Fyrirsætan Hailey Baldwin hefur sótt um einkarétt á nafninu Hailey Bieber. Fyrirsætan hefur verið í sambandi með kanadíska tónlistarmanninum Justin Bieber í nokkurn tíma en óljósar fregnir bárust af hjónavígslu þeirra í síðasta mánuði.

Þau voru sögð hafa sótt sér hjúskaparvottorð í New York en talin hafa gengið í það heilaga. Slúðurmiðlar voru uppfullir af óstaðfestum fregnum þess efnis og getgátum en svo fór að þau gáfu út að þau ættu eftir að staðfesta hjónaband sitt fyrir guði. Sem þýðir væntanlega að þau gætu hafa fengið hjúskaparleyfið en ekki látið pússa sig saman við kirkjulega athöfn.

Hailey, sem er dóttir leikarans Stephen Baldwin, úr Baldwin-bræðragenginu, sótti um að hafa einkarétt á notkun á nafninu Hailey Bieber á klæðnað og er sögð ætla að gefa út sína eigin fatalínu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.