Lífið

Fólkið á Airwaves: Frítt armband í skiptum fyrir nokkrar vaktir

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Clemens var nokkuð brattur þegar blaðamaður hitti á hann.
Clemens var nokkuð brattur þegar blaðamaður hitti á hann. Vísir/Þórhildur Erla
Clemens Schwegler frá Sviss var að klára vaktina sína sem sjálfboðaliði í Ráðhúsi Reykjavíkur þegar að blaðamaður hitti á hann. Hann er skiptinemi í Háskóla Íslands og er að læra landfræði.

„Ég ákvað að gerast skiptinemi því maður fær frítt armband á hátíðina í skiptum fyrir nokkrar vaktir og maður kynnist öðru fólki“ segir Clemens.

Hann sagði að það væri enginn sérstök hljómsveit sem hann vildi sjá. „Ég ætla að reyna að sjá sem flest og flakka á milli staða. Ég var búin að hlusta á nokkur lög frá ákveðnum hljómsveitum á netinu,“ segir Clemens.


Tengdar fréttir

Fólkið á Airwaves: Spenntust að sjá Ásgeir og Júníus

CJ og Francisco eru komin til Íslands frá London til þess að berja fjölmarga listamenn augum á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves. Hún kemur frá Sydeny í Ástralíu en kærastinn hennar, Francisco, er frá Portúgal en þau búa saman í London.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.