Flugvélaframleiðandinn Boeing hefur sent Icelandair og öðrum flugfélögum sem fljúga 737 Max-vélum félagsins leiðbeiningar um hvernig skuli bregðast við gallanum sem talið er að hafi leitt til hraps vélar Lion Air á dögunum.
Boeing segist hafa sent leiðbeiningarnar í gær, sem í stuttu máli fela í sér ráðleggingar til flugfélaga um að reiða sig á fyrirliggjandi ferla þegar grunur leikur á gallanum. Í handbók vélanna megi finna röð aðgerða sem flugmenn eigi að grípa til ef óvenjulegar viðvaranir taka að berast frá umræddum hraðanema.
Rannsóknarnefnd indónesískra samgönguslysa telur að innistæðulaus viðvörun frá nemanum hafi orðið til þess að sannfæra flugmenn Lion Air um að vélin væri að hækka flugið. Slíkar viðvaranir geta leitt til þess að vélin tekur sjálf að lækka flugið, en ekki er vitað hvort sú hafi verið raunin í flugi Lion Air 610. Það telst þó nokkuð ljóst að flugmenn vélarinnar hafi brugðist við skilaboðunum með því að lækka sjálfir flugið, með þeim afleiðingum að vélin hafnaði í Jövuhafi. Lækkunin var svo hröð að vélin er sögð hafa verið á um 965 kílómetra hraða þegar hún hafnaði á sjávarfletinum. Allir þeir 189 sem um borð voru í vélinni eru taldir af.
Icelandair tók í notkun flugvélar sömu tegundar fyrr á árinu auk fjölda annarra flugfélaga. Of snemmt er að draga ályktanir um öryggi vélanna en það þykir með furðulegra móti að glæný vél lendi í slysi sem þessu. Vélin var afhent Lion Air 15 ágúst síðastliðinn og hafði einungis flogið samanlagt í um 800 klukkustundir. Þó er talið að þessir tilteknu nemar vélarinnar hafi áður verið til vandræða.
Rannsókn málsins stendur enn yfir og segist Boeing liðsinna indónesískum flugstjórnaryfirvöldum við rannsóknina. Flugvélaframleiðandinn hefur afhent 219 Max-flugfélar, sem eru þær nýjustu í 737-fjölskyldunni. Boeing hafa borist rúmlega 4500 pantanir á slíkum vélum.
Flugvélaframleiðendur senda viðskiptum sínum reglulega leiðbeiningar um hvernig skuli bregðast við göllum sem upp kunna að koma við notkun vélanna, sem flestar teljast varla til tíðinda. Þegar gallarnir leiða til gríðarlegs manntjóns, eins og þess sem varð undan ströndum Jövu, geta flugfélög hins vegar búist við fleiri og ítarlegri ráðleggingum.
Nánar verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2017-09-07T144452.760Z-haukar.png)
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2025-02-14T125946.545Z-2021-10-15T150140.503Z-Jeruzalem_Ormoz.png)