Íslenska/pólska heimildarmyndin In Touch eftir Pawel Ziemilski hefur verið valin í aðalkeppni á IDFA, stærstu heimildarmyndahátíð heims, sem hófst í Amsterdam fyrr í vikunni.
Í tilkynningu frá framleiðendum myndarinnar segir að það þyki mikill heiður að keppa til verðlauna á IDFA en árlega sækja meira en 3000 myndir um að komast að á hátíðinni, en eingöngu 80 keppa til verðlauna.
Myndin er framleidd af Lukasz Dluglecki og Hauki M Hrafnsyni fyrir NUR og meðframleidd af Antoni Máni Svanssyni fyrir Join Motion Pictures. Myndin var tekin upp að miklu leyti hér á landi en í henni er sögð sagan af þorpinu Stare Juchy í Póllandi sem tvístrast eftir að þriðjungur íbúa þess hverfur á Íslandi.
„Þeir sem eftir eru, flestir af eldri kynslóðinni, halda í vonina að börn þeirra og barnabörn snúi einn daginn til baka þrátt fyrir að hafa hafið nýtt líf hinu megin í Evrópu. Fjarlægðin á milli þeirra er mikil og ferðin er dýr, svo fjölskyldur fá ekki að faðmast eins oft og þær kjósa. Besta í stöðunni er að vera í tíðu og áköfu sambandi í gegnum Skype,“ segir í tilkynningu.
Fjöldi Íslendinga kemur að gerð myndarinnar, þar á meðal kvikmyndatökumaðurinn Ásta Júlía Guðjónsdóttir og frumsamin tónlist myndarinnar er eftir Árna Val Kristinsson.
Ný íslensk/pólsk heimildarmynd keppir til verðlauna í Amsterdam
