Skoðun

Tonn af eiturblönduðu fóðri í boði Norð­manna

Bubbi Morthens skrifar

Þá er það staðfest. Í september og október síðastliðnum var gefið eitrað fóður í sjókvíum við Steinanes og við Hringsdal í Arnarfirði. Eitrið sem blandað er í fóðrið heitir Slice vet.



Það má líka minna á að laxeldið við Hringsdal er brot á starfsleyfisskilyrðum um 6 mánaða hvíldartíma á milli eldiskynslóða. Umhverfisstofnun virðist ófær um að fylgja eftir eigin ákvæðum fiskeldislaga – nema brotin séu vísvitandi – og hún hefur ítrekað tafið málið með því að vísa því til umhverfisráðuneytisins til veitingar undanþágu. Ráðuneytið hefur ekki lagaheimild til að veita slíka undanþágu, þess vegna viðgengst brotið án þess að eftirlitsaðilinn geri nokkuð. Þetta er vítaverð stjórnsýsla.



Arnarlax hefur í tvígang fengið heimild til að nota eiturblandað fóður gegn fiski- og laxalús. Eitrið heitir Slice vet. og er virka efnið í því Emamektinbenzoat. Lyfinu var blandað í laxafóður frá fóðurverksmiðjunni Skretting As í Noregi í hlutföllunum 2,15 kg af lyfi í hvert tonn af fóðri. Þetta var síðan gefið laxinum í vikutíma.



Fyrra leyfið var veitt í september 2018 til fóðrunar á laxi í Steinanesi og alls gefin 480 tonn af eiturblönduðu fóðri. Seinna leyfið var veitt í október sl. til fóðrunar á laxi í kvíum við Hringsdal í sama firði. Alls voru þá gefin 97 tonn af eiturblönduðu fóðri.



Þetta er hollustan sem boðið er uppá, gott fólk. Þetta eitur fer út í lífríkið. Þetta eitur fer í fuglana, í börnin okkar, okkur sjálf, fyrir utan þá gríðarlegu mengun sem fylgir þessu opna eldi. Almenningur gerir sér kannski ekki grein fyrir því en Norðmenn skeyta ekkert um strendur Íslands, firði eða annað. Þeir gera það sem þarf að gera til þess að hagnast. Starfsmannaleigur sjá um mannskap, þeir sjá svo sjálfir um að hirða hagnaðinn.



PS. Ég er hlynntur eldi uppi á landi þar sem þarf ekki að moka tonnum af eiturblönduðu fóðri út í lífríkið.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×