Herlögin voru samþykkt af þingi Úkraínu í gær, í kjölfar þess að Rússar hertóku þrjú skip sjóhers Úkraínu sem verið var að sigla til Mariupol. Einhverjir sjóliðar særðust þegar skipin voru hertekin og búist er við því að allir sjóliðarnir 23 verði færðir fyrir dómara seinna í dag.
Ríkisreknar sjónvarpsstöðvar í Rússlandi hafa í dag birt myndbönd af úkraínsku sjóliðunum. Einn þeirra las upp tilkynningu um að hann sagði siglingu þeirra hafa verið ógnandi.
Heiko Maas, utanríkisráðherra Þýskalands, hefur biðlað til yfirvalda Úkraínu og Rússlands að sýna stillingu og stakk upp á því að Þýskaland, Frakkland, Rússland og Úkraína gætu unnið saman til að leysa deiluna.
Peskov gaf þó lítið fyrir það og sagði enga þörf á því að fá utanaðkomandi aðila til að miðla málum. Hann sagði Rússa líta á málið sem einfalt brot á lögsögu þeirra.
Rússar segja skip Úkraínu hafa siglt inn í lögsögu þeirra, án leyfis. Sendinefnd Rússlands hjá Sameinuðu þjóðunum sagði í gær að „ögrun“ þessi hefði verið skipulögð fyrir fram með aðkomu vesturvelda og markmiðið væri að auka hervæðingu Asóvshafs, án þess þó að færa nokkrar sannanir fyrir því.
#Polyanskiy: This #Ukrainian provocation has been planned in advance with a full connivance of #Western states which have given carte blanche to any actions of #Kiev.Over the past months Kiev has been fueling the issue of so-called militarization of the Azov Sea with #US support. pic.twitter.com/3l2QC74uH5
— Russian Mission UN (@RussiaUN) November 26, 2018
Ríkin gerðu samkomulag árið 2003 um að Asóvshaf væri sameiginlegt hafsvæði þeirra. Asóvsaf liggur austur af Krímskaga og suður af landsvæði Úkraínu og yfirráðasvæði aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu
Rússar innlimuðu Krímskaga af Úkraínu árið 2014 og tóku óeinkennisklæddir sérsveitarmenn þátt í innlimuninni. Í fyrstu neituðu yfirvöld Rússlands að viðurkenna að þar væru hermenn þeirra á ferð en Vladimir Pútín, forseti Rússlands, viðurkenndi það seinna meir.
Brú var byggð yfir Kerchsund eftir innlimun Krímskaga og var hún opnuð fyrr á þessu ári. Síðan þá hafa Rússar aukið umsvif sín í Asóvshafi og að undanförnu hafa Rússar farið um borð í öll skip sem siglt er til eða frá höfnum Úkraínu og leitað þar um borð.
Áðurnefnd herlög verða í gildi í 30 daga í tíu héruðum Úkraínu. Petro Poroshenko, forseti Úkraínu, sagði í gær að veruleg hætta væri á innrás Rússa. Gagnrýnendur forsetans óttast þó að hann muni nota herlögin til að koma í veg fyrir að forsetakosningar verði haldnar í mars, eins og til stendur.
Poroshenko þykir óvinsæll í Úkraínu, samkvæmt BBC, en hefur þvertekið fyrir að vilja koma í veg fyrir kosningarnar.