Dýrlingar á hraðri niðurleið Kristinn Páll Teitsson skrifar 26. nóvember 2018 06:30 Mark Hughes, þjálfari Southampton. Fréttablaðið/Getty
Það gengur lítið sem ekkert hjá liði Southampton þessa dagana. Eftir þrettán leiki hefur það aðeins unnið einn leik og stefnir allt í að liðið muni þurfa að berjast fyrir lífi sínu allt fram að lokadögum ensku úrvalsdeildarinnar annað árið í röð. Sætið er orðið ansi heitt undir hinum velska Mark Hughes sem tók við liðinu í mars. Í 21 leik í ensku úrvalsdeildinni undir stjórn Hughes hafa Dýrlingarnir aðeins unnið þrjá leiki og fengið sextán stig af 63 mögulegum. Vandræði Southampton hófust þegar Ronald Koeman yfirgaf félagið fyrir tveimur árum. Liðið hafði tekið stöðugum framförum í ensku úrvalsdeildinni fram að því, fyrst undir stjórn Mauricio Pochettino og síðar Koeman sem kom liðinu í Evrópukeppni tvö ár í röð. Fyrir vikið var til mikils ætlast af hinum franska Claude Puel sem missti fjóra burðarása liðsins, þá Victor Wanyama, Sadio Mane, Graziano Pellé og José Fonte, á fyrsta tímabili sínu á meðan leikmennirnir sem keyptir voru til að leysa þá af stóðust ekki væntingar. Undir stjórn Puel komst Southampton í úrslitaleik deildarbikarsins þar sem liðið þurfti að horfa á eftir bikarnum til Manchester United og lenti í áttunda sæti deildarinnar. Áttunda sætið var ekki fjærri því sem liðið hafði náð ári áður undir stjórn Koeman en liðið fékk sautján stigum færra en árið áður og var aðeins sjö stigum frá því að falla niður í Championship á ný. Puel var látinn fara um sumarið og Mauricio Pellegrino tók við störfum en honum var enginn greiði gerður með dramatíkinni sem fylgdi félagsskiptum Virgil Van Dijk til Liverpool. Aftur gengu félagsskiptin ekki upp og var Pellegrino látinn fara í mars síðastliðnum og leitaði stjórn Southampton til Hughes sem var þá atvinnulaus eftir að hafa verið rekinn frá Stoke fyrr á tímabilinu. Hughes tókst að kaupa sér tíma og framlengingu á samningi sínum hjá Southampton því að tveir sigrar og alls átta stig í síðustu átta leikjum dugðu til að bjarga Dýrlingunum fyrir horn undir lok síðasta tímabils. Sigur gegn Swansea í 37. umferð sendi Swansea niður og bjargaði Dýrlingunum. Í upphafi þessa tímabils hefur slakt gengi liðsins haldið áfram og fór Southampton niður í fallsæti með sigri Huddersfield um helgina. Aðeins markatalan heldur þeim frá því að vera í neðsta sæti deildarinnar og leikjadagskráin fram undan er ekki Southampton í hag. Í næstu níu leikjum mæta Dýrlingarnir meðal annars Manchester-liðunum tveimur, Tottenham, Arsenal og Chelsea, en eiga einnig leiki gegn Cardiff og Huddersfield þar sem Dýrlingarnir einfaldlega verða að taka þrjú stig. Hughes hefur áður verið í þessari stöðu, honum tókst að bjarga QPR fyrir horn en eftir slakt gengi var honum sparkað stuttu fyrir jólatörnina 2012. Þrátt fyrir það virðist Hughes vera nokkuð brattur og bjartsýnn á að hann geti snúið gengi liðsins við. „Þetta var allt eftir bókinni og ekkert kom okkur á óvart. Það eru allir búnir að fá nóg af þessu gengi. Stuðningsmenn liðsins þurfa enn og aftur að sjá okkur spila vel en ná ekki úrslitunum og það er liðinu dýrkeypt þessa dagana. Þetta eru fimm eða sex leikir í vetur sem við erum betri aðilinn en fáum ekkert út úr því,“ sagði Hughes og bætti við: „Það verða alltaf einhverjir sem efast um framtíð manns sem knattspyrnustjóra. Ég get ekki breytt því, þegar úrslitin eru á þennan veginn verður fólk pirrað. Það getur verið svolítið óréttlátt, því að fólk einblínir þá á neikvæðu hliðina og sér hlutina ekki út frá réttu sjónarhorni. Ég hef verið í þessari stöðu áður, þetta er heimur knattspyrnustjórans og þetta truflar mig ekki. Ég verð bara að einbeita mér að því að leysa vandamálið og fara að sækja stig og ég hef trú á þessum hóp. Við munum snúa þessu gengi við og klífa töfluna.“
Birtist í Fréttablaðinu Enski boltinn Mest lesið Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Fleiri fréttir Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ „Spiluðum mjög vel í dag“ „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Arsenal aldrei aflað meira en tapaði samt þremur milljörðum Hafa verið þrettán ár af lygum „Frábær leikur en ég er ekki ánægður með úrslitin“ Jafntefli niðurstaðan í frábærum leik á Villa Park Kostaði Man. United meira en 2500 milljónir að reka Ten Hag og Ashworth Casemiro fer ekki fet Arsenal lét heitasta framherjann í frönsku deildinni fara fyrir „slikk“ Antony með fleiri mörk í febrúar en allt Man. United liðið Sjá meira