Hrönn Bjarnadóttir kann að gera sér og öðrum dagamun og þá sérstaklega í kringum jól. Hún gefur öllum sem hún þekkir heimagert konfekt, sendir hátt í hundrað jólakort og sér til þess að öll fjölskyldan, og þar með talið hundurinn, eigi samstæð jólanáttföt.
Sjá einnig:Eins og jólasveinninn á sterum
Hrönn er mikill listabakari og gerir alltaf meðfylgjandi ís fyrir áramótin. Uppskriftin dugir vel fyrir tólf og ísinn er bestur með jarðarberjum og þeyttum rjóma.
Toblerone-ís Hrannar
- 500 ml rjómi
- 5 eggjarauður
- 125 g sykur
- Tæpur 1 dl Baileys
- 100 g ristaðar og saxaðar pekanhnetur
- 200 g Toblerone, saxað
- 100 g Toblerone, brætt
Þeytið eggjarauður og sykur vel saman. Þeytið rjómann. Saxið pekanhnetur og hitið á pönnu með smá sykri eða sírópi.
Bræðið 100 g af Toblerone og kælið örlítið. Hrærið Baileys út í. Hellið súkkulaðiblöndunni út í eggjarauður og sykur og blandið vel saman. Bætið þeytta rjómanum varlega saman við ásamt söxuðu Toblerone og söxuðum pekanhnetum.
Ísinn er settur í form og svo í frysti. Ef ísinn er settur í form sem er ekki með lausum botni mælir Hrönn með að setja matarfilmu í botninn og upp fyrir kantana svo það sé auðveldara að poppa honum úr forminu til að skera hann og bera fram. Ísinn þarf að vera í frysti í a.m.k. 5 klst. áður en hann er borinn fram.
Að sögn Hrannar er skemmtilegt að setja jóla- eða áramótablæ á ísinn með því að skera hann út með kökumótum.