Lífið

Lögregla staðfestir öryggi Davidson eftir kall á hjálp

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Davidson og Grande þegar allt lék í lyndi
Davidson og Grande þegar allt lék í lyndi Getty/Jeff Kravitz
Lögreglan í New York hefur staðfest að grínistinn Pete Davidson er heill á húfi og í öruggum höndum, en óttast var um Davidson eftir að hann setti inn færslur á Instagram síðu sína í gær þar sem hann virtist kalla á hjálp og sagðist ekki vilja vera á þessari jörð lengur. Hann eyddi síðar Instagram reikningi sínum.

Ummæli Davidson komu í kjölfar þess að fyrrverandi unnusta hans, söngkonan Ariana Grande, gerði rifrildi rapparanna Kanye West og Drake að umtalsefni sínu á Twitter.

Í tísti sem hún eyddi síðar á fimmtudag sagði hún „Krakkar ég veit að það eru fullorðnir menn að rífast á netinu en ég og Miley erum að gefa út falleg ný lög í kvöld, þannig að ef þið gætuð allir hagað ykkur í eins og nokkra tíma svo að stelpurnar geti fengið að njóta sín væri það æði takk.“

Kanye svaraði tísti Grande í gærmorgun og sagðist meðvitaður um að söngkonan hafi ætlað sér að vera töff og ekki meint neitt illt en að hann kynni ekki við að vera lítilsvirtur á nokkurn hátt af fólki sem þætti vænt um hann. Sagði hann jafnframt að fólk væri ekki lengur til í brandara um geðheilbrigði, en Kanye hefur verið opinskár upp á síðkastið um baráttu sína við geðhvörf.

Söngkonan baðst síðar afsökunar og sagði að ummæli hennar hefðu verið tillitslaus og heimskuleg.



Kynnti tónlistaratriði seinna um kvöldið

Davidson, sem hefur mátt þola mikið áreiti á netinu eftir að hann og Grande slitu trúlofun sinni í haust, tók upp hanskann fyrir Kanye.

„Bravó Kanye West fyrir að verja sjálfan þig og tala um geðheilbrigði. Ég get ekki útskýrt hversu erfitt og ógnvekjandi það er að vera hreinskilinn um svona mál. Við þurfum fólk eins og Kanye. Enginn ætti að gagnrýna þig fyrir þitt hugrekki í því að tala um geðheilbrigði. Mér býður við svona.“

Síðar bætti grínistinn við að hann væri að gera sitt besta.

„En ég veit ekki hversu mikið lengur ég mun endast. Ég hef bara reynt að hjálpa fólki,“ sagði hann og bætti við að hann vildi ekki lengur vera á þessari plánetu. Síðar eyddi hann Instagram reikningi sínum.

Davidson hefur, rétt eins og Kanye, talað opinskátt um geðheilbrigðismál en hann er greindur með jaðarpersónuleikaröskun.

Síðar um kvöldið kom Davidson stuttlega fram í jólaþætti Saturday Night Live, hvar hann hefur verið í leikarahópi í nokkur ár, til að kynna tónlistaratriði Miley Cyrus. 

Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið. Þjálfaðir og reynslumiklir sjálfboðaliðar á öllum aldri svara þeim símtölum og spjöllum sem berast. Fullum trúnaði er heitið.

Nánari upplýsingar hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.