Innlent

Þeim fjölgar ár frá ári sem kjósa að gefa Sannar gjafir

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Hnetupakkinn er kallaður þriðji orkupakkinn þetta árið.
Hnetupakkinn er kallaður þriðji orkupakkinn þetta árið. MYND/UNICEF
Sífellt fjölgar þeim sem nýta sér þann kost að gefa Sannar gjafir um jólin. Dæmi eru um að heilu fjölskyldurnar hafi ákveðið að gefa slíkar jólagjafir.

UNICEF á Íslandi hefur undanfarin ár haft til sölu gjafir sem koma fólki á erlendri grundu sem býr við erfiðar aðstæður til góða. Sem dæmi um slíkar gjafir má nefna vatnshreinsitöflur, hlý teppi og vetrarfatnað fyrir börn og orkuríkt hnetumauk.

„Við sjáum aukningu frá því í fyrra þó endanlegar tölur liggi ekki fyrir. Margir gefa þeim sem allt eiga slíka gjöf og enn aðrir lauma þessu með sem merkimiða,“ segir Anna Margrét Hrólfsdóttir, fjáröflunarstjóri UNICEF á Íslandi. Hún segir að þetta árið hafi mest selst af hlýjum vetrarfatnaði og teppum enda tengi Íslendingar vel við þá tilfinningu að vera kalt.

Gjafirnar eru einnig hentugar fyrir þá sem mögulega gleyma að kaupa gjöf handa einhverjum enda hægðarleikur að kaupa þær af heimasíðu samtakanna hvenær sem er sólarhrings.

„Ég veit til að mynda um konu sem fékk óvænta heimsókn skömmu fyrir jól. Fyrir utan stóð fjölskylda með konfektkassa. Hún sagði að sjálfsögðu að hún hefði „akkúrat verið að kaupa gjöfina þeirra“. Síðan prentaði hún út gjafabréf fyrir hlýjum fötum handa börnum í neyð og afhenti þeim,“ segir Anna Margrét og hlær. „Ef einhver vaknar upp við vondan draum í dag þá er alltaf hægt að leita til okkar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×