Heimsmeistaramótið í pílukasti stendur nú sem hæst á Englandi en Stöð 2 Sport 2 HD er heimili pílunnar yfir hátíðarnar. Leikið verður fram á Þorláksmessu og þráðurinn svo tekinn upp 27. desember áður en úrslitin ráðast svo á nýársdag.
Mörg glæsileg tilþrif hafa sést nú þegar á HM en enginn hefur náð að klára leik með níu pílum sem er það besta og flottasta sem hægt er að gera í pílukasti.
Einn leikur eða „leg“ í átt að sigri í setti byrjar þannig að pílukastararnir reyna að koma sér niður frá 501 og hægt er að ná því með að hitta níu pílum í röð. Oftast setja menn píluna sjö sinnum í röð í þrefalda 20, svo í einfaldan 19 og klára með tvöföldum tólf.
Aðeins sjö sinnum hefur níu pílna leikur verið festur á filmu á HM en það hefur aðeins gerst 53 sinnum að menn hafa klárað leik með níu pílum þegar myndavélar voru á staðnum.
Enginn náði að klára leik með níu pílum á HM 2018 og ekki heldur 2017 en síðasti maðurinn til að gera það á HM var Gary Anderson 2. janúar 2016.
Phil Taylor, fjórtánfaldur heimsmeistari í pílukasti, hefur oftast tekið níu pílur í sjónvarpi eða ellefu sinnum en næstu menn á eftir honum hafa náð því fimm sinnum.
Hér að neðan má sjá bestu níu pílurnar sem Sky Sports tók saman.
Níu pílur gera allt tryllt | Myndband
Tengdar fréttir
Komst áfram á HM í pílu en var gagnrýndur fyrir ruddaskap og dólgslæti
Englendingurinn James Wade vann endurkomusigur á Japanum Seigo Asada á HM í pílu í gær og komst fyrir vikið áfram í þriðju umferð keppninnar.