Innlent

Jólavertíðin enn mjög mikilvæg verslunum

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Undanfarin ár hafa breytingar orðið á verslun á Laugavegi þar sem meira er nú stílað inn á ferðamenn.
Undanfarin ár hafa breytingar orðið á verslun á Laugavegi þar sem meira er nú stílað inn á ferðamenn. Fréttablaðið/Eyþór
Það má segja almennt að í gegnum tíðina hefur jólavertíðin, fyrir mjög stóran hluta af versluninni, verið eins og vertíðin hjá sjávarútvegi. Hún hefur skipt öllu máli,“ segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, um mikilvægi jólaverslunar í nóvember og desember fyrir fyrirtæki og verslanir hér á landi.

Kortaveltan þessa tvo mánuði segi allt sem segja þarf og sé besti mælikvarðinn á hvernig neyslan dreifist yfir árið.

„Ótrúlega stór hluti af ársveltunni hefur verið í nóvember/desember.“

Þeir sérfræðingar sem Fréttablaðið hefur talað við benda á að í gegnum tíðina hafi gjarnan verið talað um að fyrirtæki sé jafnvel rekið með tapi allt árið þar til jólavertíðin gengur í garð og bjargar því. Andrés segir breytingar hafa orðið á þessu fyrir um fjórum til fimm árum.

„Þegar ferðamennirnir komu svona sterkir inn í hagkerfið og breyttu miklu fyrir íslenska verslun. Ekki síst í miðborg Reykjavíkur þar sem hún hefur tekið algjörum stakkaskiptum. Þú þarft ekki að ganga lengi um miðbæinn til að sjá þær breytingar sem orðið hafa á viðskiptamynstrinu.“ Miklu hafi munað þegar ferðamenn fóru úr hálfri milljón í tvær og hálfa á ári.

„Fyrir átta árum stólaði verslunin að stórum hluta á jólavertíðina. Veltan í nóvember og desember réð mjög miklu um afkomu ársins hjá fyrirtækjum og í mörgum tilfellum á það við enn í dag. Mynstrið hefur breyst með ferðamönnunum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×