Nauðgunar- og líkamsárásarmál, sem kom upp í Vestmannaeyjum fyrir rúmu einu og hálfu ári, var sent til framhaldsrannsóknar hjá lögreglu í vor, að því er fram kemur í frétt RÚV sem greindi fyrst frá. Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari segir í samtali við Vísi að skoða hafi þurft ákveðin atriði málsins betur en getur ekki tjáð sig frekar um það í hverju framhaldsrannsóknin felst.
Málið kom upp þann 17. september 2016 en þolandinn, kona á fimmtugsaldri, fannst snemma um morguninn úti á götu í Eyjum, nakin og með mikla áverka á höfði. Maðurinn sem grunaður er í málinu sat í gæsluvarðhaldi í um tíu daga vegna þess.
Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari vill ekki tjá sig um það í hverju framhaldsrannsóknin felst né heldur hvaða atriði það eru sem þurfi að skoða betur.
Sjá einnig: Líkamsárás í Vestmannaeyjum: Lögreglan vildi meta geðheilbrigði mannsins
Hún segir enn fremur að ekki sé útséð um það hvað rannsóknin taki langan tíma en henni verði flýtt eins og hægt er. Þá er búið að úthluta starfsmanni Héraðssaksóknara málinu en Kolbrún gerir ráð fyrir að það verði afgreitt um leið og það kemur aftur inn á borð til hans. Engin bið verði þannig á afgreiðslu þess.
Í október var greint frá því að rannsókn lögreglu í málinu væri lokið og það komið í ákæruferli hjá ákærusviði lögreglunnar. Á annan tug vitna var yfirheyrður vegna málsins og þá voru lífsýni úr fatnaði send í lífsýnarannsókn.
Árásin vakti mikinn óhug enda voru lýsingar í greinargerð lögreglu ófagrar. Vitni lýsti því þannig að konan hafi verið afmynduð í andliti, nakin og blóðug á kynfærum. Voru áverkar hennar afar miklir og var konan köld og í annarlegu ástandi þegar hún fannst.
Gróft nauðgunarmál úr Vestmannaeyjum sent aftur til rannsóknar

Tengdar fréttir

Lífsýni úr fatnaði í nauðgunarmáli í Eyjum rannsökuð
Rannsókn lögreglunnar í Vestmannaeyjum á nauðgun og líkamsárás sem grunur leikur á að hafi verið framin í september í fyrra er á lokastigi.

Rannsókn á nauðgun í Vestmannaeyjum lokið og málið komið í ákæruferli
Á annan tug vitna var yfirheyrður vegna málsins og þá voru lífsýni úr fatnaði send í lífsýnarannsókn.

Líkamsárás í Vestmannaeyjum: Lögreglan vildi meta geðheilbrigði mannsins
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands þess efnis að ekki verði kallaður til dómkvaddur matsmaður til þess að framkvæma mat á manni sem meðal annars er grunaður er um alvarlega líkamsárás og kynferðisbrot gegn konu í Vestmannaeyjum 17. september síðastliðinn.