Rennico er 22 ára gamall miðvörður en hann hefur meðal annars verið á mála hjá Portland Timbers í MLS-deildinni en þar náði hann ekki að brjóta sér leið inn í aðalliðið.
Hann lék marga leiki með varaliði félagsins en hann hefur nú samið við FH sem hefur leitað að miðverði í allan vetur eftir að félagið missti Kassim Doumbia og Bergsvein Ólafsson. Kappinn á sex leiki fyrir U20 ára lið Jamaíku.
Liðinu hefur ekki gengið vel á undirbúningsmótum þennan veturinn en liðið mætir Grindavík í fyrsta leik sumarsins er liðið heimsækir þá grænklæddu í Grindavík í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar.
Rennico Clarke hefur skrifað undir samning við FH sem gildir út tímabilið 2019. Rennico er 22 ára miðvörður sem var síðast að mála hjá Portland Timbers í MLS deildinni. Við FH-ingar bjóðum Rennico velkominn í Kaplakrika. #ViðerumFH #fotboltinet pic.twitter.com/cARkFuKOwS
— FHingar.net (@fhingar) April 9, 2018