Bítlarnir svokölluðu voru alræmdur hópur erlendra vígamanna ISIS sem fengu nafnið vegna hreims þeirra. Allir voru frá vesturhluta London og pyntuðu fjórmenningarnir vestræna gísla samtakanna og tóku þá af lífi. El Sheikh er sakaður um að hafa aflífað blaðamenn sem voru í haldi ISIS. Vitað er að þeir myrtu minnst sjö gísla en talið er að þeir hafi verið fleiri.
ElSheikh og Alexanda Kotey voru handsamaðir í Sýrlandi í byrjun ársins. Mohammed Emwazi, sem gekk undir nafninu Jihadi John, var felldur í loftárás árið 2015 og Aine Davis var handtekinn í Tyrklandi.
Sjá einnig: Síðustu „Bítlarnir“ í haldi Kúrda
ElSheikh viðurkenndi að hafa meðlimur ISIS en vildi ekki segja hvað hann hefði gert fyrir samtökin og sagði að það gæti beðið þar til réttarhöld yfir honum byrjuðu. Það liggur þó ekki fyrir hvar eða hvort réttað verður yfir honum. Bretar hafa til dæmis fellt niður ríkisborgararétt ElSheikh.
Kúrdar halda hundruðum erlendra vígamanna ISIS sem heimaríki þeirra vilja ekkert með hafa og vilja ekki fá heim aftur. ElSheikh vildi einnig ekki segja hvar hann hefði verið handsamaður, en sýrlenskir Kúrdar sögðu það hafa verið nærri Deir Ezzor og hann hafi þá verið á leið til Idlib.
Þegar Moussa spurði hann hvort hann hefði verið ósammála einhverju innan Íslamska ríkisins sagðist hann hafa verið á móti umferðarsektum. Skömmu seinna sagðist hann styðja þrælahald.
„Þú verður að skilja, að þó Bandaríkin hafi ákveðið að fella eitthvað niður, ég veit ekki hvaða ár það var, þá þýðir það ekki að hver einasta manneskja verði að fylgja þeim. Segja að þetta sé nú hræðilegur hlutur sem enginn megi gera. Staðreyndin er sú að þrælahald hefur verið til staðar eins lengi og mannkynið.“
ElSheikh virtist ekki hafa verið sáttur við Bítlanafnið. Hann sagðist ekki hlusta á tónlist og vildi ekki tjá sig um það að öðru leyti en að hann þóttist viss um að John Lennon hefði ekki verið ánægður með það.
Vildi engu svara um gíslana
Moussa reyndi einnig að spyrja ElSheikh út í örlög James Foley, Kayla Mueller, John Cantlie, Samir Kassab, Ishaq Mukhtar, gísla ISIS. Hann vildi þó ekki tjá sig um það og neitaði að svara spurningum hennar. Hann sagðist þó ekki hafa horft á aftökumyndbönd Íslamska ríkisins og að hann vildi ekki gera það og þætti ekki gaman að horfa á slíkt.
ElSheikh vildi ekki senda skilaboð til fjölskyldu sinnar í Bretlandi, sem hefur afneitað honum, og brást reiður við þegar Moussa sagðist mögulega ætla að heimsækja móður hans. Sömuleiðis neitaði hann þegar Kúrdar buðu honum að senda bréf til fjölskyldu sinnar.
Moussa hefur áður rætt við meðlimi ISIS og segir hún að ElSheikh hafi verið svipaður og aðrir að því leyti að hann virtist einungis vorkenna sjálfum sér og sýndi engar tilfinningar gagnvart fórnarlömbum grimmdarverka Íslamska ríkisins. Eftir að hann varð reiður og slökkt var á myndavélunum ræddu þau saman um stund og þá sagði ElSheikh að ef hann gæti farið aftur til ársins 2012 myndi hann taka sömu ákvarðanir aftur.
1/ EXCLUSIVE: I had first TV interview with notorious ISIS member from UK, part of group dubbed "The Beatles".
— Jenan Moussa (@jenanmoussa) April 8, 2018
Accused of beheading reporters, he was caught by Kurds.
I met him face to face. He got angry at me. Interview in English for @akhbar.
Part1:pic.twitter.com/CaAV81towQ
2/ I just tweeted 1st part of my exclusive TV interview with El Shafee Elsheikh, ISIS member from UK. He's suspected member of notorious ISIS group "The Beatles".
— Jenan Moussa (@jenanmoussa) April 8, 2018
Find below final part of interview for @akhbar. Nope, he didn't like my set of questions.pic.twitter.com/h6dKMTDnCL
11/ Notorious #ISIS-fighter El Shafee Elsheikh told me in interview he was in Raqqa when he read reports that UK media dubbed him and 3 other ISIS-men "The Beatles".
— Jenan Moussa (@jenanmoussa) April 8, 2018
Said to me: "I think John Lennon wouldn't have liked it much."
From 1 min 55 sec: pic.twitter.com/CaAV81towQ