Lífið

Lindsay Lohan byrjar með raunveruleikaþætti á MTV

Sylvía Hall skrifar
Lindsay Lohan.
Lindsay Lohan. Vísir/Getty
Barnastjarnan Lindsay Lohan mun snúa aftur á skjáinn í nýjum raunveruleikaþætti á sjónvarpsstöðinni MTV. Þættirnir munu fylgja Lohan eftir þar sem hún sér um rekstur næturklúbbs á Grikklandi.

Þættirnir munu bera heitið „Lohan Beach Club“, eða strandklúbbur Lohan, og mun hún reyna að ná rekstri klúbbsins og veitingastaðar á flug.

Þættirnir munu hefja göngu sína árið 2019 og mun Lohan hafa yfirumsjón með teymi áhrifavalda sem munu vekja athygli á klúbbnum á meðan þau munu reyna að „standast þær freistingar sem næturlíf Mykonos hefur upp á að bjóða“.

Þetta er þriðja viðskiptaævintýri Lohan í Grikklandi, en hún opnaði annan næturklúbb undir eigin nafni átið 2016 í Aþenu og strandarhús á eyjunni Rhodes sem mun opna nú í sumar.

Lohan var ein frægasta barnastjarna Bandaríkjanna á sínum yngri árum eftir að hafa slegið í gegn í bíómyndunum „The Parent Trap“ og „Mean Girls“. Frægðin var þó ekki dans á rósum fyrir barnastjörnuna og þurfti hún sex sinnum að fara í meðferð vegna fíkniefnavanda á árunum 2007 til 2013. Síðustu ár hefur leikkonan þó unnið að því að koma sér á beinu brautina og hefur hún verið búsett utan Bandaríkjanna í nokkurn tíma. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.