Skoðun

MAST stöðvar hvolpaframleiðslu Dalsmynnisræktunar - með réttu

Árni Stefán Árnason skrifar

Samkvæmt frétt á vef MAST hefur stofnunin stöðvað endanlega hvolpaframleiðslu á Dalsmynni. Ég fagna því. Í upphafi fréttarinnar segir:



„Matvælastofnun hefur tekið ákvörðun um stöðvun starfsemi Hundaræktarinnar í Dalsmynni á grundvelli laga um velferð dýra“.



Í kjölfarið útskýrir MAST nánar röksemdir sínar, sem ég hvet lesendur til að kynna sér. Tengil á frétt MAST má finna neðst í þessari skoðun.



Ég gagnrýndi þessa hvolpaframleiðslu fyrir nokkrum misserum talsvert opinberlega.



Því undi hvolpaframleiðandinn fyrrverandi á Dalsmynni, Ásta SIgurðardóttir ei og krafðist í dómsmáli ómerkingar 9 ummæla minna (hér f neðan) sem endaði með dómi Hæstaréttar Íslands. Niðurstaða Hæstaréttar var kærð til Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE) hvar málsmeðferðin og dómurinn er til meðferðar. Ég uni því ekki að þau tvö ummæli. sem dæmd voru dauð og ómerk séu það, nema MDE komist að annari niðurstöðu.



En hið mikilvæga er þetta. Af 9 ummælum, sem krafist var ómerkingar á voru 7 látin standa af æðsta dómstól landsins og eiga því við um hvolpaframleiðsluna sem nú hefur verið lokað.



Miskabótakrafa var dæmd, þó Ásta hafi aldrei geta sýnt fram á neitt tjón. Þvert á móti fullyrti hún að allt neikvætt umtal um hvolpaframleiðsluna rifi upp sölu hjá henni.



Ummælin eru þessi og hin feitletruðu þau, sem standa þ.e. eru ekki dæmd dauð og ómerk af Hæstarétti Íslands, hann gerir engar athugasemdir við þau og því áttu þau við um starfsemi Dalsmynnis á þeim tíma þegar dómur féll 17. desember 2015. Nú tveimur og hálfu ári síðar, útrýmir MAST Dalsmynnisvandamálinu.



a) „Þá væri ég löngu búinn að loka þessum stað“

b) „Alveg örugglega. Ég hef verið sannfærður í langan tíma um að þarna sé verið að brjóta nokkur ákvæði dýraverndarlaga. Ef ég væri í stöðu til að vera héraðsdýralæknir og með þá reynslu sem ég hef að dýrahaldi, þá væri ég löngu búinn að loka þessum stað“

c) Svofelld ummæli er birtust í fyrirsögn greinar á vefsíðunni dv.is þann 9. október 2013:



„Dýraníð að Dalsmynni“



d) Svofelld ummæli er birtust í grein á vefsíðunni dv.is þann 9. október 2013:



„Rekstraraðilinn Ásta Sigurðardóttir hefur augljóslega einnig gerst brotleg við dýraverndarlög með ýmsum hætti. Við brotum Ástu eins og þau blasa við mér getur refsing varðar (sic) allt að tveggja ára fangelsi.“



e) Svofelld ummæli er birtust í grein á vefsíðunni dv.is þann 9. október 2013:



„Gæsalappir eru hér notaðar því ég tel að starfsemin eigi ekkert skylt við ræktun.“



f) Svofelld ummæli er birtust í grein á vefsíðunni dv.is þann 9. október 2013:



„Að Dalsmynni fer fram framleiðsla á dýrum við bágborin skilyrði“



g) Svofelld ummæli er birtust í grein á vefsíðunni dv.is þann 9. október 2013:



„Það á ekki við um Ástu sem hefur eitthvað að fela.“



h) Svofelld ummæli er birtust í grein á vefsíðunni dv.is þann 9. október 2013:



„Réttilega verður starfsemin að Kjalarnesi aðeins nefnd einu nafni, hvolpaframleiðsla“



Tengill á frétt MAST




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×