Þeir sem spiluðu illa gegn WBA fá ekki séns gegn Spurs Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 17. apríl 2018 06:00 Jose Mourinho. vísir/getty
Þeir leikmenn sem stóðu sig ekki nógu vel í tapi Manchester United gegn West Bromwich Albion um helgina fá ekki að spila í undanúrslitum enska bikarsins. Þetta sagði Jose Mourinho, knattspyrnustjóri United. Með tapinu varð Manchester City Englandsmeistari, jafntefli eða sigur United hefði þýtt að enn væri tölfræðilegur möguleiki á að ná City. United mætir Bournemouth annað kvöld í deildinni en spilar svo við Tottenham í undanúrslitum bikarkeppninnar á laugardag. „Ég vel leikmenn bara eftir frammistöðum,“ sagði Mourinho. „Sumir þeirra sem spiluðu gegn West Brom eiga ekki sæti í liðinu í undanúrslitunum á Wembley.“ Þegar Mourinho var beðinn um að staðfesta að þeir sem stóðu sig ekki gegn WBA fengu ekki að spila gegn Tottenham sagði hann: „Já.“ „Hvernig velur maður lið sitt? Eftir frammistöðu. Eða á ég að fara að velja í liðið eftir verðmiðum, launum eða andlitsfegurð?“ Paul Pogba var einn af þeim sem var tekinn af velli á Old Trafford á sunnudag. Mourinho vildi þó ekki gefa það út að Frakkinn fengi ekki sæti í liðinu næstu helgi. „Paul var tekinn út af því hann var á gulu spjaldi. Hann var ekki verri en sumir aðrir sem spiluðu 90 mínútur.“ „Leikurinn gegn Bournemouth verður tækifæri fyrir nokkra til að vinna sér inn sæti í liðinu gegn Spurs,“ sagði Jose Mourinho.
Enski boltinn Tengdar fréttir Manchester City eru Englandsmeistarar eftir tap Manchester United Manchester City eru enskir meistarar eftir sigur West Bromwich Albion á Manchester United í dag. 15. apríl 2018 16:45 Guardiola: Stutt í Mourinho en mjög langt í Sir Alex Pep Guardiola fagnaði í gær enska meistaratitlinum með Manchester City og hefur nú unnið 23 opinbera titla sem knattspyrnustjóri. 16. apríl 2018 16:45 Sjáðu hvernig Manchester United færði City titilinn á silfurfati Manchester United kom í veg fyrir að nágrannar þeirra í Manchester City tryggðu sér titilinn um síðustu helgi en United-menn færðu lærisveinum Pep Guardiola aftur á móti titilinn á silfurfati í gær. 16. apríl 2018 08:00 Mest lesið Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Fótbolti Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Alcaraz sjokkerar tennisheiminn Sport Spilar áfram með Messi í Miami Fótbolti Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Enski boltinn Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Moyes ældi alla leiðina til Eyja Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Skemmtilegt fyrir fólkið heima og United verðskuldaði sigur Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Vildi ekki skýra ummælin um verstu 48 klukkutímana frekar Maresca hafi tekið blaðsíðu úr bók Salah og gert sér óleik Guardiola gagnrýndi Foden þrátt fyrir markið „Finnst þér ekki eins og hann sé þjakaður af pressu yfir því hvað hann sé lélegur?“ Fyrirliði Newcastle eftir tapið fyrir Sunderland: „Þetta er svo vandræðalegt“ Sjáðu klaufalegt sjálfsmark Woltemade í grannaslagnum og öll hin úr enska Amorim verður ánægður ef Mainoo ræðir við hann um lán „Sé ekkert annað en að dýrasti leikmaður deildarinnar verði áfram á bekknum“ „Í dag er dagurinn sem þú fæddist, í dag er dagurinn sem þú munt deyja“ Henderson heiðraði minningu Jota eftir fyrsta markið sitt í fjögur ár Calvert-Lewin jafnaði fyrir Leeds í lokin Sjá meira
Manchester City eru Englandsmeistarar eftir tap Manchester United Manchester City eru enskir meistarar eftir sigur West Bromwich Albion á Manchester United í dag. 15. apríl 2018 16:45
Guardiola: Stutt í Mourinho en mjög langt í Sir Alex Pep Guardiola fagnaði í gær enska meistaratitlinum með Manchester City og hefur nú unnið 23 opinbera titla sem knattspyrnustjóri. 16. apríl 2018 16:45
Sjáðu hvernig Manchester United færði City titilinn á silfurfati Manchester United kom í veg fyrir að nágrannar þeirra í Manchester City tryggðu sér titilinn um síðustu helgi en United-menn færðu lærisveinum Pep Guardiola aftur á móti titilinn á silfurfati í gær. 16. apríl 2018 08:00