Lífið

Indiana Jones er sumarhetja allra tíma

Þórarinn Þórarinsson skrifar
Þær eru fáar klípurnar sem Indiana Jones getur ekki bjargað sér úr með því að sveifla nautasvipunni góðu
Þær eru fáar klípurnar sem Indiana Jones getur ekki bjargað sér úr með því að sveifla nautasvipunni góðu Vísir/Getty
Samkvæmt fræðunum fann Steven Spielberg upp „sumarsmellinn“ í Hollywood árið 1975 með Jaws. Blóðþyrstur risahákarl sem kjamsaði á fólki sem hætti sér í sjósund í sumarfríinu virtist vera akkúrat það sem þurfti til þess að draga fólk í milljónatali í bíó.

Tveimur árum síðar breytti George Lucas kvikmyndaheiminum varanlega með Star Wars og 1981 sameinuðu þessir vinir krafta sína og trommuðu upp með Raiders of the Lost Ark. Einhverri fjörugustu og ævintýralegustu poppkornsmynd síðari tíma.

Hraðinn og hasarinn í æsilegu kapphlaupi fornleifafræðingsins Indiana Jones við nasista um að finna Sáttmálsörkina var eitthvað það geggjaðasta sem sést hafði í bíó þótt í raun væri um að ræða bergmál þrjúbíó-myndanna sem Lucas og Spielberg ólust upp við.

Lucas gaf Harrison Ford ómetanlegt tækifæri þegar hann réð hann í hlutverk geimkúrekans Han Solo í Star Wars og sem betur fer höguðu örlögin því þannig til að Ford endaði einnig í hlutverki Indiana Jones.

Ford hefur gert þá báða, Jones og Solo, að einhverjum dáðustu persónum kvikmyndasögunnar og það væri til þess eins að æra óstöðugan að reyna að telja saman allar þær skrilljónir dollara sem þessar tvær kempur hafa rakað saman í Star Wars og Indiana Jones-myndunum.



Marion Ravenwood verður traustasti bandamaður Indiana Jones í Raiders of the Lost Ark. Frábær persóna og harðasti naglinn í myndinniVísir/getty
Lucas og Spielberg hafa ekki enn látið hvarfla að sér að fá annan leikara til þess að leika fornleifafræðinginn með hattinn og svipuna enda myndi slíkt varla vita á gott.

Kannski reikar nefnilega hugur manns tæp 40 ár aftur í tímann til Fords og Indys vegna þess að nýjustu Star Wars-myndinni, Solo: A Star Wars Story, gengur ekki nógu vel í miðasölunni.

Sem er að vísu rannsóknarefni vegna þess að myndin er þvottekta Star Wars-ævintýri en að manni læðist sá grunur að þar sem myndin segir forsögu Han Solo, með nýjum ungum leikara í hlutverkinu, hafni heittrúaðir myndinni einfaldlega vegna þess að Alden Ehrenreich er ekki Harrison Ford.

Misráðið vitaskuld, ekki síst þar sem Ford sjálfur, sem í seinni tíð virðist hafa umturnast í gamlan nöldursegg, hefur ausið arftakann unga lofi. „Alden negldi þetta. Hann gerði þetta að sínu,“ hefur Ron Howard, leikstjóri Solo, haft eftir Ford. En betur má ef duga skal. Greinilega.

Ágætt líka að hafa í huga í þessu samhengi að þegar kvikmyndatímaritið Total Film efndi til skoðanakönnunar meðal lesenda sinna í fyrra var Indiana Jones valinn með yfirburðum stórkostlegasta kvikmyndapersóna allra tíma. Og Han Solo fylgdi honum eftir í 3. sæti með Batman á milli.

Það er hvorki heiglum né hetjum hent að feta í fótspor Fords en Indiana Jones stendur þó enn óhaggaður og ómengaður í þvældum leðurjakka, með hattinn og svipuna á lofti. Indy er búinn að vera mesta og besta sumarmyndayndið í 37 ár og alltaf tilefni til þess að endurnýja kynnin við hann.


Tengdar fréttir

Slappiði af, Han Solo getur ekki klikkað

Fyrsta sjálfstæða Stjörnustríðsmyndin, Rogue One: A Star Wars Story, heppnaðist gríðarlega vel og sýndi fram á að í raun eru möguleikarnir óteljandi fyrir skemmtileg ævintýri í Star Wars-heiminum með frelsinu sem fylgir því að þurfa ekki að spinna söguna innan ramma ættarsögu Geimgenglanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.