Tveggja ára stúlka lést í Atlanta-ríki í Bandaríkjunum á föstudag eftir að spegill í skóversluninni Payless Shoe Source féll á hana. Washington Post greinir frá þessu.
Hin tveggja ára Ifrah Siddique var í verslunarleiðangri með fjölskyldu sinni á föstudagskvöld, þar sem versla átti skó á stúlkuna. Fjölskylda hennar sagði í samtali við dagblaðið Atlanta Journal-Constitution að stúlkan hafi verið að skoða sig um nálægt stórum spegli í versluninni þegar spegillinn féll skyndilega á hana. Spegillinn var ekki veggfastur og því óöruggur og steyptist um koll.
Stúlkan var með miklar innvortis blæðingar og hafði misst mikið blóð þegar sjúkraflutningamenn komu á slysstað. Hún lést stuttu síðar á nærliggjandi sjúkrahúsi.
Talsmenn verslunarkeðjunnar Payless Shoe Source gáfu út yfirlýsingu vegna málsins og sögðust vinna með lögregluyfirvöldum við rannsókn málsins
„Við sendum fjölskyldu Ifrah Siddique okkar dýpstu samúðarkveðjur vegna þessa gríðarlega missis. Við erum niðurbrotin vegna þessa hræðilega atviks og erum að vinna með lögregluyfirvöldum við að rannsaka og skilja hvernig slysið átti sér stað. Af virðingu við fjölskylduna munum við ekki láta í té frekari upplýsingar um málið,“ segir í yfirlýsingunni.
