Bíó og sjónvarp

Mads Mikkelsen mætir á RIFF þar sem hann verður heiðraður

Stefán Árni Pálsson skrifar
María Thelma og Mads Mikkelsen leika saman í myndinni Artic.
María Thelma og Mads Mikkelsen leika saman í myndinni Artic. Vísir/Getty
Hinn danski Mads Dittmann Mikkelsen varð heimsþekktur sem illmennið Le Chiffre í James Bond bíómyndinni Casino Royal árið 2006. Hann var þó löngu áður orðinn þekktur í Evrópu fyrir hæfileika sína í leiklist. Mads mun fá verðlaun RIFF fyrir framúrskarandi listrænan leik (Creative Excellence Award) en RIFF hátíðin hefst 27. september og lýkur 7. október. Mads mun mæta á opnun hátíðarinnar og vera á landinu til 2. október en þetta kemur fram í tilkynningu frá RIFF.

Mads Mikkelsen fæddist í Østerbro í Kaupmannahöfn þann 22. nóvember 1965. Hann fór seint í leiklistina, hann lærði fimleika og fór í balletskóla í Gautaborg í Svíþjóð, og starfaði sem atvinnudansari í næstum áratug áður en hann sneri sér að leiklistinni. Hann sló fyrst í gegn í dönsku bíómyndinni Pusher (1996) þegar hann var 30 ára gamall. Sú mynd fór víða um Vesturlönd og vakti athygli á þessum sjarmerandi leikara.

Mikkelsen hefur síðan þá leikið meðal annars Igor Stravinsky í frönsku myndinni Coco Chanel & Igor Stravinsky (2009) og hlutverk Lúkasar í dönsku myndinni Jagten (2012) eftir Thomas Vinterberg. Fyrir það hlutverk vann hann verðlaunin Besti leikari í aðalhlutverki í Cannes. Þá hefur hann fengið einróma lof fyrir hlutverk sitt sem Dr. Hannibal Lecter í sjónvarpsþáttaröðinni Hannibal.

Þá var nýjasta myndin hans, Artic, öll tekin upp á Íslandi. Leikstjórinn er Joe Penna og verður hún frumsýnd í ár. Mads leikur aðalhlutverkið en næst stærsta hlutverkið er í höndum íslensku leikkonunnar Maríu Thelmu Smáradóttur. Myndin fjallar um mann á norðurslóðum sem bíður björgunar en þá brotlendir björgunarþyrlan og flugmaðurinn deyr og upphefst þá baráttan fyrir lífinu fyrir alvöru.

Á RIFF hátíðinni verða sýndar myndir með honum í aðalhlutverki, meðal annars Menn & hænsni sem er bráðfyndin svört kómedía sem er leikstýrt af Óskarsverðlaunahafanum Anders Thomas Jensen. Einnig verða sýndar myndirnar Konunglegur kostur (Kongelige affære) sem gerist í Danmörk árið 1770 og Bjargræði (The Salvation) sem er mynd úr villta vestrinu í Bandaríkjunum með Mikkelsen í aðalhlutverki. Mads Mikkelsen mun taka þátt í umræðum eftir sýningu þessara mynda á hátíðinni.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.