Arnar Úlfur gefur út sólóplötu: „Tími ekki að gera þetta í gríni“ Bergþór Másson skrifar 19. ágúst 2018 12:15 Arnar Freyr Frostason, eða Arnar Úlfur, gaf út plötuna Hasarlífstíll á dögunum. vísir/auðunn
Arnar Freyr Frostason, meðlimur rapphljómsveitarinn Úlfur Úlfur, gaf út sína fyrstu sólóplötu á dögunum undir listamannanafninu Arnar Úlfur. Platan ber heitið Hasarlífsstíll og eru gestir hennar engin önnur en: Salka Sól, Helgi Sæmundur (Úlfur Úlfur), Kött Grá Pjé og Kjartan Lauritzen. Platan er að mestu útsett af Birni Vali, en Sin Fang og Redd Lights komu einnig að pródúseringu. Arnar byrjaði að vinna í plötunni eftir að Helgi Sæmundur, samstarfsmaður hans í Úlfur Úlfur til margra ára, fór á fullt í að semja tónlistina fyrir Stellu Blómkvist, þættir sem sýndir voru í Sjónvarpi Símans í fyrra. Þá fór Arnar í fyrsta skipti að vinna alvarlega að tónlist með einhverjum öðrum en Helga.Grín sem varð alvarlegt Hljómsveitin Úlfur Úlfur var stofnuð árið 2010 og hefur gefið út þrjár plötur í fullri lengd og hefur hún verið ein vinsælasta hljómsveit landsins í mörg ár. Í samtali við Vísi segir Arnar þær allar hafa verið virkilega útpældar og vel pródúseraðar. Á sóloplötu sinni hafi honum hinsvegar langað til að fá „útrás fyrir kjaftæðinu.“ „Mér fannst bara rökrétt að taka þetta skref. Prófa að vinna með öðrum pródúserum og sjá hvert það myndi taka mig. Þetta byrjaði í hálfgerðu gríni, þetta átti bara að vera „fyrir götuna“ eins og maður segir. Síðan fór maður að taka grínið svoldið alvarlega. Maður tímir ekki að gera þetta í gríni, grín lifir svo stutt.“Fékk loksins að vinna með kærustunni Arnar segist hafa unnið með fólki sem hann hefur lengi viljað vinna með, eins og til dæmis kærustunni sinni Sölku Sól, sem hefur gert garðinn frægan í bæði Amabadama og Reykjavíkurdætrum. Salka Sól er með gestavers á laginu Falafel og vakti framkoma hennar mikla athygli á samfélagsmiðlum þegar platan kom út. „Við höfum lengi verið að plana samstarf en núna fannst mér bara rétt að gefa út einhvern „dörra“ saman. Ég var næstum því jafn spenntur fyrir því að sýna heiminum versið hennar og að gefa plötuna út.“ segir Arnar.Hafa ekkert að sanna Úlfur Úlfur er nú átta ára gömul hljómsveit og hefur rapplandslag Íslands breyst töluvert síðan hljómsveitin var stofnuð. Arnar og Helgi byrjuðu að geta lifað á tónlistinni eftir útgáfu lagsins Tarantúlur, „þá breyttist allt hins betra“ segir Arnar, og náði sveitin hápunkti í vinsældum þegar Brennum Allt kom út, „þar peakuðum við á einhvern yndislegan hátt.“ „Einhverra hluta vegna þá hefur verið allt í lagi þó við gefum ekki lag út í ár. Kannski er það líka bara afþví við erum búnir að vera að þessu svo lengi. Við erum komnir á þann stað að við getum leyft okkur að vera mjög rólegir en boltinn rúllar bara. Við erum búnir að sanna okkur. Fólk sem hefur séð okkur á tónleikum veit að við getum spilað á tónleikum. Það þarf að hafa voða litlar áhyggjur af okkur.“Finnur fyrir kynslóðabili Ef horft er til baka á sögu rapptónlistar hafa erjur og ósætti á milli kynslóða alltaf verið til staðar og vinsælustu rappararnir ávallt verið í yngri kantinum. Sérstaklega hefur það verið í umræðu vestanhafs upp á síðkastið, vegna rappara eins og Lil Yacthy og Lil Pump, sem hafna stöðlum settum af forverum sínum, lifa í nútíðinni, og bera litla virðingu fyrir fortíðinni. Arnar segist finna fyrir þessu kynslóðabili hérlendis en segir það ekkert endilega vera neikvætt. „Ég er mjög meðvitaður um eigið umhverfi. Ég veit af öllum og ég tjékka á öllum.“Nýlega settist rapparinn J. Cole, sem er þekktur fyrir innihaldsríka texta og hefðbundin rappstíl, niður með hinum 18 ára Lil Pump, sem rappar ítrekað um sitt eigið kærulausa líferni. Þeir spjölluðu saman í klukkutíma með það að markmiði að reyna að brúa bilið milli kynslóðanna og finna sameiginlegan grundvöll. „Það sem unglingarnir eru að gera er að virka. Þetta eru hlutir sem ég reyni ekki einu sinni að gera. J. Cole myndi ekki reyna að gera Lil Pump lög. Ég gæti reynt það og sumir á mínum aldri reyna það, en það færi mér ekki vel. Ég hef ekki þessa sögu að segja, það væri hallærislegt.“„Þetta er ekki ritskoðun“ Munnshöfnuður og umfjöllunarefni rappara hafa verið mikið í umræðunni bæði hérlendis og vestanhafs á síðustu misserum. Arnar segir að rapparar þurfa að vanda sig hvað þeir eru að segja, hugsa aðeins út í það hverjir séu að hlusta, og hvaða áhrif hlutirnir hafa. „Þegar fólk gagnrýnir hlutina sem er fjallað um þá bara margir að segja að rapparar eigi ekki að ritskoða sjálfan sig en mér finnst oft spurningin ekki vera að við erum ekki endilega að ritskoða okkur, stundum á bara að vanda sig betur hvað þú segir. Það voru hlutir á þessari plötu sem ég bokstaflega hætti við á lokametrunum og það var sagt við mig oftar en einu sinni: „Ekki vera að ritskoða þig,“ en þetta er ekki ritskoðun, þetta eru bara ekki hlutir sem mig langar að segja og standa á bakvið. Sumt bara er óþarfi að segja. Afhverju? Það er bara smá þannig“ segir hann.Ekkert mál að eldast Arnar stefnir á halda áfram að þróa sólóferilinn og kemur meðal annars fram á Airwaves, bæði með hljómsveitinni Úlfur Úlfur og sem Arnar Úlfur. Aðspurður í lok samtals við blaðamann hvernig lífið sé og hvort hann sé hamingjusamur, svarar Arnar glaðlega: „Ég er sæll og glaður. Ég held það heyrist á plötunni. Það er einhver djöfulsins sátt á plötunni. Ég varð þrítugur í ár og ég hélt það yrði erfitt, en þvert á móti, ég varð bara miklu chillaðari.“ Hægt er að hlusta á plötuna Hasarlífsstíl á Spotify hér að neðan.
Tengdar fréttir Brúðkaup í kortunum hjá Arnari Frey og Sölku Sól Söngparið Arnar Freyr Frostason og Salka Sól Eyfeld ætla að ganga í það heilaga. 25. ágúst 2017 13:18 Úlfur Úlfur með óvænt útspil: Þrjú myndbönd gefin út á sama deginum og plata á leiðinni Rappsveitin Úlfur Úlfur gaf í dag út þrjú tónlistarmyndbönd í einu og opnaði sveitin einnig glænýja vefsíðu. 25. apríl 2017 15:00 Úlfur Úlfur slær í gegn á pólskri sjónvarpsstöð Rappsveitin Úlfur Úlfur kom fram í morgunþættinum Dzien Dobry á pólsku sjónvarpsstöðinni TVN. Strákarnir tóku lagið Bróðir til að kynna tónleika sína í Varsjá. 13. september 2017 11:30 Mest lesið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Jólagjöf ársins er stóllinn sem getur allt nema flogið Lífið Brostnar væntingar á Frostrósum Gagnrýni Besta jólagjöfin að sjá bata foreldranna Lífið Áreittar í sundi fyrir það að vera hinsegin Menning Guðmundur „ofpeppaðist“ og reif sig á kassann Lífið „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Lífið Ellen Margrét og Arnmundur orðin hjón Lífið Myndaveisla: Rauð jól hjá Jökli í Kaleo Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Fleiri fréttir Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Live in a fishbowl: Stórvinir X-ins í Brain Police rifu þakið af húsinu Live in a fishbowl: Alvöru harðkjarnapönk í boði I adapt Hélt tryllt tónlistarteiti og eignaðist svo tvíbura Breyta japönskum dúett í íslenskt jólalag Landslið tónlistarmanna mætti þegar Maggi Eiríks var hylltur Fjölbreyttur hópur tónlistarfólks tilnefndur til Kraumsverðlauna Live in a fishbowl: Spacestation spilaði tónlist fyrir „fallegt fólk“ Uppáhalds jólalögin: Munkadjamm og jólaleg sambandsslit Kunna ekki að slaka á og heyrðu í Svölu Björgvins Live in a fishbowl: Dr. Gunni alltaf á leiðinni til að drepa þig „Látið jólaljós ykkar skína skært“ Auður einhleypur og skýtur á yfirvöld vegna Yazans Fyrstur kemur, fyrstur fær: Magnúsi Eiríkssyni fagnað og þjóðinni boðið Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinu Daði Freyr tekur stefnuna til Íslands eftir áratug úti Fred again í sal en ekki á sviði: „Orðrómur sem við höfðum enga stjórn á“ „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi Sjá meira
Brúðkaup í kortunum hjá Arnari Frey og Sölku Sól Söngparið Arnar Freyr Frostason og Salka Sól Eyfeld ætla að ganga í það heilaga. 25. ágúst 2017 13:18
Úlfur Úlfur með óvænt útspil: Þrjú myndbönd gefin út á sama deginum og plata á leiðinni Rappsveitin Úlfur Úlfur gaf í dag út þrjú tónlistarmyndbönd í einu og opnaði sveitin einnig glænýja vefsíðu. 25. apríl 2017 15:00
Úlfur Úlfur slær í gegn á pólskri sjónvarpsstöð Rappsveitin Úlfur Úlfur kom fram í morgunþættinum Dzien Dobry á pólsku sjónvarpsstöðinni TVN. Strákarnir tóku lagið Bróðir til að kynna tónleika sína í Varsjá. 13. september 2017 11:30