Slökkvistarfi er nú lokið á Hellisheiði en eldur kom upp í loftræstibúnaði Hellisheiðarvirkjunar laust fyrir hádegi í dag. Brunavarnir Árnessýslu munu þó vakta svæðið í nótt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orku náttúrunnar.
Ekki er útlit fyrir að verulegt tjón hafi orðið á framleiðslubúnaði virkjunarinnar og að sá búnaður sem sló út eða slökkt var á í dag skili fullum afköstum um eða eftir helgi. Jarðhitasýning Orku náttúrunnar, sem starfrækt er í virkjuninni, verður þó lokuð fram á mánudag, að minnsta kosti.
Eftir að eldurinn hafði verið slökktur gengu reykkafarar úr skugga um að ekki leyndust glæður milli þilja og stóð það starf fram á fimmta tímann. Ekki er vitað hver eldsupptökin voru en eldur logaði í um tvo tíma í loftræstibúnaði og þaki miðhluta stöðvarhússins, þar á meðal þakpappa sem gaf frá sér talsverðan reyk. Nú þegar er verið að undirbúa fyrstu viðgerðir á þaki stöðvarhússins.
Í tilkynningunni segir að almenningur hafi ekki orðið fyrir truflun á framleiðslunni og vonað erað svo verði ekki. Einni af sex háþrýstivélum Hellisheiðarvirkjunar sló út skömmu eftir að eldsins varð vart en engin tengsl hafa þó enn sést þar á milli. Af öryggisástæðum var þó ákveðið að slökkva á lágþrýstivél virkjunarinnar og varmastöð áður en slökkvistarf hófst. Útlit er fyrir að takist að endurræsa lágþrýstivélina og varmastöðina um helgina.
Í varmastöðinni er framleitt heitt vatn fyrir hitaveituna á höfuðborgarsvæðinu. Þar sem útlit er fyrir kólnandi veður er full þörf fyrir þá framleiðslu. Í dag var meðal annars farið yfir til hvaða aðgerða mætti grípa tefjist það að koma heitavatnsframleiðslunni af stað.
Innlent
Slökkvistarfi lokið á Hellisheiði
Tengdar fréttir
Eldur í Hellisheiðarvirkjun
Slökkviliðsmenn hafa náð tökum á eldinum.
Slökkvistarf gengur vel: „Það er alltaf gott að sjá ljósan reyk“
"Það er alltaf gott að sjá ljósan reyk,“ segir Haukur Grönli varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu í samtali við fréttastofu fyrir utan stöðvarhús Hellisheiðarvirkjunar þar sem kviknaði eldur skömmu fyrir hádegi í dag.