Í umsögn dómnefndar segir að myndin hafi ríkt erindi við samtíma sinn, miðli mikilvægum lífsgildum og fangi litróf þjóðarinnar. Sagan sé sögð af mikilli hlýju og næmi, full af gleði og hjarta. Í frétt á vefnum Klapptré kemur fram að í dómnefnd voru Ragnar Bragason, Elísabet Indra Ragnarsdóttir og Yrsa Roca Fannberg.
Söngur ömmu Kanemu er heimildamynd um leit hinnar söngelsku Ernu Kanemu að söngvum frá Sambíu, heimalandi föður síns. Um leið og Erna kemst í snertingu við uppruna sinn þá öðlast hún skilning á tónlistarhefð forfeðra sinna og tekur brot af henni með sér heim til Íslands.
KanemasSong_Trailer_2minWeb_1080p from Anna Thora Steinthorsdottir on Vimeo.
Rjómi hlaut hvatningarverðlaunin
Rjómi eftir Freyju Kristinsdóttur hlaut hvatningarverðlaun dómnefndar. Haustið 2012 hugðist Hilmar Egill Jónsson flytja frá Noregi heim til Íslands með hundinn sinn Rjóma. Þegar hann fékk synjun frá Matvælastofnun um að hundurinn mætti koma til landsins, hófst lygileg atburðarrás og fimm ára þrotlaus barátta Hilmars við kerfið.„Þetta er bara frábær lítill orkubolti sem er bara guðsgjöf. Hann er skemmtilegur og bara einn af fjölskyldunni. Rjómi er af tegundinni English Bull terrír, hress, skemmtilegur og hoppandi glaður, hann er í raun og verur fyrir alla“, sagði Hilmar Egill Jónsson, eigandi Rjóma, í kvöldfréttum Stöðvar 2 í síðasta mánuði.
„Klassísk saga af óréttlæti sem kemur þó sífellt á óvart og heldur manni föngnum frá upphafi til enda,“ sagði í umsögn dómnefndar um myndina. Leikstjóri er Freyja Kristinsdóttir.
Rjómi - Trailer ÍSLENSKA from Freyja Kristinsdottir on Vimeo.