Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta, hefur þurft að gera nokkrar breytingar á hópnum sem hann valdi upphaflega til æfinga fyrir Gulldeildina í Noregi sem hefst fimmta apríl.
Markvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson, Ólafur Bjarki Ragnarsson, Ólafur Guðmundsson, Ólafur Gústafsson, Theodór Sigurbjörnsson og Ýmir Örn Gíslason gefa ekki kost á sér vegna meiðsla eða persónulegra ástæðna.
Inn í hópinn koma úr B-liðinu Ágúst Birgisson úr FH, Daníel Þór Ingason úr Haukum og Selfyssingarnir Elvar Örn Jónsson og Teitur Örn Einarsson. Allir fjórir eru í 18 mannahópnum sem mætir Noregi, Frakklandi og Danmörku á sterkasta æfingamóti Evrópu sem fram fer í Noregi um helgina.
Einar Guðmundsson, þjálfari B-landsliðsins, hefur í samstarfi við Guðmund valið fjóra sem koma inn í B-liðið sem mætir Japan og Hollandi á æfingamóti um helgina.
Það eru þeir Árni Bragi Eyjólfsson og Böðvar Páll Ásgeirsson úr Aftureldingu, Einar Sverrisson úr Selfossi og Eyjamaðurinn Elliði Snær Viðarsson.
Hópurinn sem fer til Noregs:
Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Haukar
Viktor Gísli Hallgrímsson, Fram
Vinstra horn:
Bjarki Már Elísson, Füchse Berlin
Stefán Rafn Sigurmarsson, Pick Szeged
Vinstri skytta:
Aron Pálmarsson, FC Barcelona
Daníel Þór Ingason, Haukar
Leikstjórnendur:
Elvar Örn Jónsson, Selfoss
Gísli Þorgeir Kristjánsson, FH
Haukur Þrastarson, Selfoss
Hægri skytta:
Ómar Ingi Magnússon, Aarhus
Ragnar Jóhannsson, Hüttenberg
Rúnar Kárason, Hannover-Burgdorf
Hægra horn:
Arnór Þór Gunnarsson, Bergischer
Teitur Örn Einarsson, Selfoss
Línumenn:
Arnar Freyr Arnarsson, IFK Kristianstad
Ágúst Birgisson, FH
Vignir Svavarsson, Team Tvis Holstebro
Varnarmaður:
Alexander Örn Júlíusson, Valur
B-hópurinn sem fer til Hollands:
Markverðir:
Ágúst Elí Björgvinsson, FH
Grétar Ari Guðjónsson, ÍR
Vinstra horn:
Hákon Daði Styrmisson, Haukar
Vignir Stefánsson, Valur
Vinstri skytta:
Böðvar Páll Ásgeirsson, Afturelding
Einar Sverrisson, Selfoss
Ísak Rafnsson, FH
Leikstjórnendur:
Anton Rúnarsson, Valur
Magnús Óli Magnússon, Valur
Hægri skytta:
Arnar Birkir Hálfdánsson, Fram
Agnar Smári Jónsson, ÍBV
Kristján Örn Kristjánsson, Fjölnir
Hægra horn:
Árni Bragi Eyjólfsson, Afturelding
Óðinn Þór Ríkharðsson, FH
Línumenn:
Elliði Snær Viðarsson, ÍBV
Sveinn Jóhannsson, Fjölnir

