Menning

„Náttúruníðingur“ meðal sýnenda á listahátíðinni Cycle

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Fullveldi og þjóðernishyggja verða tekin til skoðunar á listahátíðinni Cycle í ár.
Fullveldi og þjóðernishyggja verða tekin til skoðunar á listahátíðinni Cycle í ár. Aðsend mynd
Listahátíðin Cycle hefst á morgun og stendur yfir þar til á sunnudaginn. Yfirskrift hátíðarinnar í ár er Þjóð meðal þjóða og fjallar hún „á ögrandi hátt um fullveldi Íslands í samhengi við nýlendusöguna, sjálfsmyndir Íslendinga og fjölbreytni menningar á tímum fólksflutninga og hnattvæðingar,“ eins og segir í tilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar.



Samhliða sýning verður haldin í Gerðarsafni í Kópavogi sem stendur yfir til 6. janúar á næsta ári. Fjölmargir tónleikar, gjörningar og aðrir viðburðir munu á sama tíma fara fram í Salnum, Mengi og IÐNÓ. Hátíðin teygir einnig anga sína til almenningsrýma á höfuðborgarsvæðinu.



Dagskrána í heild sinni má sjá hér.

Julius Von Bismarck var umtalaður á Íslandi sumarið 2013.Getty/Venturelli
Meðal þeirra sem taka þátt eru listamennirnir Julius von Bismarck og Julian Charriere, en Julius sætti á sínum tíma mikilli gagnrýni fyrir skemmdarverk á íslenskri náttúru, var úthrópaður „náttúruníðingur“ og lögsóttur af íslenska ríkinu. En Julius neitaði sök í málinu.

Listaverk þeirra verða sýnd á samsýningunni í Gerðarsafni ásamt hatursfullum bréfaskrifum Íslendinga sem listamennirnir fengu send í kjölfar fjölmiðlaumræðunnar.

Einnig mun Anna Rún Tryggvadóttir vera með útilistaverk á Þingvöllum sem nefnist Hringvellir og Steinunn Gunnlaugsdóttir afhjúpar útiskúlptúrinn Hafpulsan við Reykjavíkurtjörn. Um er að ræða skírskotun Litlu Hafmeyjuna í Kaupmannahöfn sem „í verki Steinunnar hefur breyst í danska pulsu.“ 

Á tónleikum á föstudagskvöldið munu koma fram grænlenski plötusnúðurinn Uyaraqk, samíski rapparinn Elle-Maaret Valle, hin dansk-karabíska Jeannette Ehlers, danski fjöllistamaðurinn Adam Christensen ásamt hinni íslensku Countess Malaise og DJ Sakana.


Tengdar fréttir

Telur sig hafa fundið náttúruníðinginn

Hlynur Hallsson, myndlistarmaður á Akureyri, var staddur á listasýningu í Berlín þegar hann sá verk þar sem náttúrufyrirbrigðin við Mývatn komu við sögu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.