Lífið

Pikachu vaknar til lífsins í nýrri mynd Warner Bros

Andri Eysteinsson skrifar
Myndin verður frumsýnd sumarið 2019.
Myndin verður frumsýnd sumarið 2019. Facebook/Pokemon:Detective Pikachu
Aðdáendur Pokémon ættu að hlakka til næsta sumars en þá verður frumsýnd kvikmyndin Pokémon: Detective Pikachu.

Stórleikarinn Ryan Reynolds talsetur Detective Pikachu í myndinni og með önnur hlutverk fara leikarar á borð við Justice Smith, Bill Nighy, Suki Waterhouse og Ken Watanabe.

Söngkonan Rita Ora fer einnig með hlutverk í myndinni.

Myndin er í leikstjórn Rob Letterman sem áður hefur leikstýrt teiknimyndunum Shark Tale og Monsters vs Aliens, Fyrsta stiklan úr myndinni var birt í dag og má sjá hana hér að neðan.


Tengdar fréttir

Leikin Pokémon kvikmynd í bígerð

Aðalpersóna nýju myndarinnar verður Detective Pikachu sem kynntur er til sögunnar í Pokémon Go leiknum vinsæla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.