Á verðlaunapallinum eftir sjöþratarkeppni Ólympíuleikanna 2008 stóðu Ólympíumeistarinn Nataliya Dobrynska frá Úkraínu, silfurverðlaunahafinn Lyudmila Blonska frá Úkraínu og bronsverðlaunahafinn Hyleas Fountain frá Bandaríkjunum.
Lyudmila Blonska fékk hins vegar á lyfjaprófi á leikunum og missti strax verðlaunin sín. Eftir tilfæringar vegna þess var Hyleas Fountain komin upp í annað sætið og hin rússneska Tatyana Chernova fékk þá bronsverðlaunin.
Sagan var aftur á móti ekki öll því níu árum seinna var sýni Tatyana Chernova prófað með betri tækni og þá kom í ljós að hún hafði líka notað ölögleg lyf á leikunum. Chernova missti því bronsið sitt.
After 10 years of waiting, Kelly Sotherton has finally been awarded her bronze medal from the Beijing Olympics. https://t.co/KcEs5HiaBupic.twitter.com/LTMuCEvav5
— BBC Sport (@BBCSport) September 14, 2018
Kelly Sotherton endaði í fimmta sæti í keppninni en var nú allt í einu komin upp í þriðja sætið og inn á pall. Í ágúst 2008 var hún 31 árs gömul og á lokakafla ferilsins. Nú er hún 41 árs gömul og hefur verið með skóna upp á hillu í mörg ár.
Kelly Sotherton fékk loksins bronsið sitt frá ÓL 2008 í gær á samkomu hjá breska Ólympíuliðinu.
Kelly Sotherton á nú þrenn verðlaun frá Ólympíuleikum. Hún vann líka brons í sjöþrautinni á ÓL í Aþenu 2004 og var einnig í bronsliðið Breta í 4 x 400 metra boðhlaupi í Peking.
Í viðtali við BBC sagðist Kelly Sotherton vera á sama tíma „ánægð, leið, reið og bitur“ en að hún vissi alltaf að hún myndi fá bronsverðlaunin á endanum. „Ég vissi það innst í hjarta mínu að þessi medalía var alltaf mín,“ sagði Kelly Sotherton.
Kelly Sotherton hefur sagt frá því að hún geymi verðlaunapeninga sína vanalega í sokkaskúffunni en þetta langþráða brons fær enga slíka meðferð.
„Ég mun ekki geyma þessa medalíu í sokkaskúffunni því þetta er medalían sem ég hef verið að bíða eftir í svo langan tíma,“ sagði Kelly Sotherton.
Kelly Sotherton varð líka vitni af því þegar Lyudmila Blonska fékk eitthvað frá þjálfara sínum í keppnnni í Peking fyrir rúmum tíu árum. Lyudmila Blonska skildi líka eftir tvær tómar lyfjaflöskur sem Sotherton lét móthaldara síðan fá.
„Þú vilt ekki koma út sem tapsár þegar þú endar í fjórða eða fimmta sæti. Þetta angraði mig samt alla tímann frá Peking þangað til að ég fékk að vita að bronsið væri á leiðinni til mín,“ sagði Sotherton.