Vissi af kynferðisbrotadómi ökukennarans eftir allt saman Sveinn Arnarsson skrifar 9. febrúar 2018 06:30 Björgvin Þór Guðnason játar að hafa vitað af fortíð ökukennarans, en neitaði fyrir það í gær í viðtali. Vísir/Eyþór
Björgvin Þór Guðnason, formaður Ökukennarafélags Íslands, þekkir vel til mannsins sem vinnur sem ökukennari og er dæmdur barnaníðingur. Einnig hafði hann vitneskju um dómana sem hann hafði hlotið.Í Fréttablaðinu í gær var sagt frá því að dæmdur barnaníðingur starfaði sem ökukennari og sýslumaður í umdæmi hans hefði gefið út leyfi án þess að skoða dóma mannsins. Maðurinn var kærður og dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdætrum sínum sem stóðu yfir í langan tíma. Voru brot hans talin stórfelld og alvarlegs eðlis. Brotin áttu sér stað frá síðari hluta ársins 1982 allt fram í ársbyrjun 1987. Í fréttinni sagðist Björgvin koma af fjöllum og ekki vita til þess að starfandi ökukennari hér á landi hefði verið dæmdur fyrir kynferðislega misnotkun á börnum. Það er hins vegar ekki rétt. Björgvin játar í samtali við blaðamann að hafa vitað af öllu saman og segist raunar þekkja umræddan ökukennara vel.Sjá einnig: Níddist á börnum en starfar sem ökukennari „Það er alveg rétt að ég þekki manninn ágætlega og af góðu einu. Hann er mikill fagmaður í starfi og ég veit ekki til þess að nokkurn skugga hafi borið á þau störf hans,“ segir formaðurinn. Tvær konur sem Fréttablaðið ræddi við í gær segja aðra sögu og segja frá orðavali sem ekki hafi verið við hæfi. Á hann að hafa sagt við aðra konuna, sem þá var barn að aldri, að hann fengi vatn í munninn í hvert skipti sem hann sæi hana. „Ástæða þess að ég kveikti ekki á þessu var að ég var með hugann við hvort eitthvert atvik hefði átt sér stað í bíl með ökukennara og kannaðist ekki við neitt slíkt athæfi. Þess vegna svaraði ég á þessa leið,“ útskýrir Björgvin.Mikilvægt að fá annað tækifæri Formaðurinn sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að það væri mikilvægt fyrir ökukennarafélagið að „allt væri á hreinu“. Í ljósi stöðunnar hefði hann rætt við stjórn félagsins og Samgöngustofu með það að markmiði að fara yfir hlutina. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra gefur út leyfi fyrir ökukennara í umdæminu. Við skoðun embættisins var ekkert í gögnunum sem benti til þess að hann ætti ekki rétt á að vera ökukennari. Björgvin segir mikilvægt að einstaklingar fái annað tækifæri. „Það eru mörg ár síðan þessi dómur féll og maðurinn hefur ekki gerst brotlegur síðan,“ segir hann.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Erlent Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Erlent Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Innlent Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Innlent Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Erlent Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Ekki hægt að aldursskipta börnum á Stuðlum í miðjum stormi Innlent Fleiri fréttir Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Ekki hægt að aldursskipta börnum á Stuðlum í miðjum stormi „Skítastaða“ á Stuðlum, vongóðir nýliðar og búð þar sem allt er ókeypis „Það verður að láta reyna á þessar kærur“ Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Mennirnir tveir fundnir Hólmfríður ætlar í ritara VG Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Malbika bílastæðin í Reynisfjöru Fluttur með þyrlu eftir bílveltu á Snæfellsnesi Ríkisstjórnin sameini það versta frá bæði vinstri og hægri „Íslenska vegakerfið er líklega hættulegasti ferðamannastaður landsins“ Starfshópur skipaður vegna slysa hjá ferðamönnum Veitingastaður ber ekki ábyrgð á hnefahöggi starfsmanns Má ekki eyða myndböndum sem mátti ekki taka Laxalúsin sækir í sig veðrið fyrir vestan Grunur um að fiskar úr landeldi hafi komist í sjó Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Mættur í Samfylkinguna Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Sjá meira