Giroud lagði upp mark þegar Chelsea komst aftur á beinu brautina Anton Ingi Leifsson skrifar 12. febrúar 2018 21:45 Sturridge og Hazard fagna í kvöld. vísir/getty Eden Hazard var í stuði þegar Chelsea vann 3-0 sigur á West Bromwich Albion á heimavelli í kvöld. Sigurinn styrkti stöðu Antonio Conte, stjóra Chelsea, en sæti hans er talið afar heitt. Daniel Sturridge sem gekk í raðir WBA frá Liverpool á dögunum þurfti að fara af velli eftir fjögurra mínútna leik vegna meiðsla. Meiðslasaga hans heldur því áfram. Eden Hazard kom Chelsea yfir á 25. mínútu eftir stoðsendingu frá nýjasta liðsmanni liðsins, Oliver Giroud, sem var í fyrsta skipti í byrjunarliði Chelsea. Í síðari hálfleik tvöfaldaði Victor Moses forystuna og Eden Hazard bætti svo við öðru marki sínu og þriðja marki Chelsea áður en leiknum yfir lauk. Lokatölur 3-0. Þessi sigur slær væntanlega aðeins á þær sögusagnir um að Antonio Conte verði rekinn sem stjóri Chelsea, en þeir bláklæddu höfðu tapað síðustu tveimur leikjum. Chelsea er í fjórða sætinu með 53 stig, en WBA er á botninum með 20 stig, sjö stigum frá öruggu sæti. Enski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn