Leitin að Ríkharði Péturssyni bar ekki árangur í dag en um eitt hundrað björgunarsveitarmenn leituðu að honum í dag. Ríkharður er tæplega fimmtugur og hans hefur verið saknað frá því síðdegis á þriðjudag.
Björgunarsveitir leituðu í þéttbýli á Selfossi og meðfram bökkum Ölfusár auk þess sem sérþjálfaðir straumvatnsbjörgunarmenn og drónar leituðu í ánni.
Engar nýjar vísbendingar komu fram í dag en skipulagðri leit verður haldið áfram á morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi verður leitin þó umfangsminni heldur en í dag.
Ríkharður sem er tæplega fimmtugur fór frá heimili sínu á Selfossi síðdegis á þriðjudag en sneri ekki til síns heima. Hann er meðalmaður á hæð, grannvaxinn, klæddur í svartar buxur, svarta úlpu og svarta húfu með gulri áletrun.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ríkharðs eru beðnir að hafa samband við lögregluna á Suðurlandi í síma 112.