Skoðun

Tími til að breyta

Eyþór Arnalds skrifar
Nú þegar rúm vika er til kosninga í borginni er rétt að spyrja hvernig gengið hafi síðustu fjögur ár. Er ódýrara að leigja eða kaupa? Er auðveldara að komast á milli staða í borginni? Geta öll 18 mánaða börn komist á leikskóla? Er borgin hrein?

Svarið við þessum spurningum er því miður eitt og það sama. Samt eru þetta einföld grundvallar­atriði sem við viljum öll að séu í lagi.

Valdaþreyta kallar á breytingar

Sextán ár eru langur tími. Ekki síst í pólitík. Sitjandi borgarstjóri hefur verið í borgarstjórn frá árinu 2002. Mestmegnis í meirihluta og síðustu átta ár óslitið við völd. Það vill brenna við að eftir svona langan tíma verði fólk samdauna kerfinu. Sjái ekki vandann.

Þeir sem þurfa ekki að bíða í Ártúnsbrekkunni í umferðarteppu skilja kannski ekki hvaða áhrif samgönguvandinn hefur á líf fólks í borginni. Þeir sem búa eiga erfitt með að setja sig í spor þeirra sem komast ekki úr foreldrahúsum. Og eftir sextán ár í Ráðhúsinu er einfaldlega kominn tími til að segja þetta gott og skipta um áhöfn.



Nýtt upphaf

Það er kominn tími á nýja forystu. Nýtt upphaf. Hrista upp í borgarkerfinu sem hefur staðnað. Hleypa inn nýjum hugmyndum og fólki sem er tilbúið að takast á við viðfangsefnin.



Breytt aðalskipulag

Strax að loknum kosningum viljum við gera breytingar á aðalskipulagi Reykjavíkur. Leyfa byggð á Keldum, í Örfirisey, við BSÍ og klára hverfin. Efla Mjódd og styrkja hverfin til sjálfstæðis. Stórbæta samgöngur. Einfalda stjórnkerfið og færa fé til skólanna. Lækka álögur og skatta. Hreinsa borgina reglulega. Gera Reykjavík að raunhæfum kosti fyrir fólkið sem vill búa hér. Förum saman í að breyta borginni. Tökum til í kerfinu. Það er kominn tími til að breyta.

Höfundur skipar 1. sæti á lista Sjálfstæðismanna í Reykjavík




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×