Dæmi um önnur fyrirtæki sem vinna nú að því að minnka plast eru veitinga- og skemmtistaðirnir Prikið, Húrra og Bravó en um helgina var tilkynnt að á þeim stöðum væri hætt að bjóða viðskiptavinum upp á sogrör úr plasti. Áætlað er að áður hafi um 20.000 plaströr endað í ruslinu á mánuði á þessum stöðum.
„Ef við tökum bara Prikið, þá eru það um 1.500-2.000 rör sem sparast á viku,“ segir Geoffrey Þór Huntington-Williams, framkvæmdastjóri Priksins. „Og ef við tökum Bravó og Húrra með í dæmið líka, þá er þetta rosalegt magn sogröra á mánuði,“ segir Geoffrey sem hefur einnig yfirumsjón með rekstri Bravó og Húrra.

Hann segir fyrstu viðbrögð vera góð. „Viðbrögðin hafa verið vægast sagt góð, þetta er eitthvað sem fólk vill.“
Geoffrey bætir við að það fólk sem þarf á sogrörum að halda geti fengið papparör. „Auðvitað verða einhver rör í boði fyrir það fólk með vantar nauðsynlega rör, til dæmis ung börn og annað fólk sem á erfitt með að drekka úr glasi, þá bjóðum við upp á papparör í staðinn. Svo hefur fólk sagt okkur frá fjölnota málmrörum og við erum að skoða þetta allt saman. En við tökum allavega plastið út.“
Spurður út í hvort hann sjái fyrir sér að aðrar og svipaðar breytingar verði gerðar á þessum stöðum á næstu misserum segir hann: „Það er ekkert ákveðið en við höldum alltaf áfram því þetta eru kannski litlir hlutir og litlar ákvarðanir sem geta skilað miklu.“