Starfsfólk leikskóla skarta UN Women húfum Elín Albertsdóttir skrifar 15. febrúar 2018 06:00 Starsfólk leikskólans Vinaminni í Asparfelli með FO-húfurnar en með því að kaupa þær styrkja þau gott málefni.
Starfsfólk í leikskólanum Vinaminni í Asparfelli er duglegt við að styrkja hin ýmsu félög ár hvert. Að þessu sinni fékk UN Women á Íslandi að njóta afraksturs og starfsfólkið fékk hlýjar húfur. Sólveig Einarsdóttir leikskólastjóri segir að skólinn hafi keypt 25 húfur sem merktar eru FO eða Fokk ofbeldi. Þetta er þriðja árið sem UN Women selur slíkar húfur til styrktar konum víða um heim sem hafa þurft að þola ofbeldi. Starfsmenn Vinaminnis nota húfurnar við útiveru með börnunum enda er hún hlý og góð í vetrarkuldanum sem nú gengur yfir landið. Sólveig segir reyndar að börnin hafi ekki getað verið mikið úti síðustu daga vegna veðursins. Hins vegar var mikið partí í leikskólanum í gær, börn og starfsmenn í búningum og það var dansað og sungið. „Það var mikill spenningur hjá börnunum að slá köttinn úr tunnunni og skapaðist virkilega góð stemming,“ segir hún.Sólveig Einarsdóttir, leikskólastjóri hjá Vinaminni.„Okkur fannst þetta málefni UN Women mjög þarft og vildum styrkja það,“ segir Sólveig. „Við höfum áður til dæmis styrkt langveik börn og fleiri samtök sem styðja við börn. Allir starfsmenn fengu húfurnar og þær koma að góðum notum. Við getum síðan notað húfurnar síðar til að tala um málefnið. Krakkarnir voru mjög spenntir þegar mynd var tekin af okkur með þessar húfur og fylgdust vel með því. Við notum húfurnar í starfinu og einnig í og úr vinnu,“ segir Sólveig en umhverfis hana voru hlátrasköll og glaðværð þegar við slógum á þráðinn til hennar í gær. Vinaminni er einkarekinn leikskóli en skólinn leggur áherslu á að styðjast við góða og gilda hugmyndafræði í leik og starfi. Ofbeldi gegn konum og stúlkum er útbreiddasta mannréttindabrot í heiminum í dag en konur úr ólíkum stéttum hafa stigið fram hér á landi og víðar um heiminn og lýst kynbundnu ofbeldi, kynferðislegri áreitni og misbeitingu valds sem þær hafa upplifað. Kynbundið ofbeldi er heimsfaraldur sem þrífst í öllum samfélögum heimsins og innan allra stétta, segir í tilkynningu frá UN Women. Fokk ofbeldi húfan kostar 4.500 krónur en hún er framleidd í takmörkuðu upplagi. Nánar má kynna sér verkefnið á heimasíðunni unwomen.is
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Lífið Úr Idolinu yfir í útvarpið Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Lífið Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Lífið Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið Tónlist Hjem til jul aftur á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur „Æsandi að hugsa til þess að annar maður horfi á“ Breyttu Kolaportinu í risa skemmtistað „Æi góði hoppaðu upp í rassgatið á þér!“ Norðlenskur útsýnisdraumur „Hvar eru allir herramennirnir?“ Stefnumótunarferð Fossa með mökum í Prag Hittast á hlutlausum stað Risavaxinn mörgæsarungi nýjasta stjarna Melbourne Magnaðar myndir af lengstu á landsins Seldu Kolbeini Sigþórs og keyptu í miðbænum Tóku hraðanum misalvarlega en hlupu fyrir langveik börn Ebba Katrín og Oddur keyptu hús í miðbænum Sjá meira