Stormy Daniels frjálst að ræða samband sitt við Trump Samúel Karl Ólason skrifar 15. febrúar 2018 10:29 Donald Trump og Stephanie Clifford, einnig þekkt sem Stormy Daniels. Vísir/Getty
Umboðsmaður klámmyndaleikkonunnar og leikstjórans Stormy Daniels, sem heitir réttu nafni Stephanie Clifford, segir hana geta „sagt sögu sína“ eftir að lögmaður Donald Trumps til langs tíma, Michael Cohen, viðurkenndi að hafa greitt henni 130 þúsund dali, um þrettán milljónir króna, árið 2016. Cliffor telur yfirlýsingu Cohen í gær brjóta gegn þagnarsamkomulagi þeirra um meint ástarsamband hennar og Trump árið 2006. Donald Trump giftist þriðju eiginkonu sinni, Melaniu Trump, árið 2005 og framhjáhaldið á að hafa átt sér stað skömmu eftir að Melania fæddi Baron Trump, son þeirra hjóna. Clifford sagði frá sambandinu upprunalega í viðtali við InTouch árið 2011. Viðtalið var þó ekki birt fyrr en í síðasta mánuði þar sem Cohen hótaði því árið 2011 að höfða mál gegn tímaritinu. Fregnir bárust af því í síðasta mánuði að Cohen hefði greitt Clifford 130 þúsund dali í aðdraganda forsetakosninganna 2016 í skiptum fyrir þögn hennar. Hún mun þá hafa átt í viðræðum við forsvarsmenn ABC sjónvarpsstöðvarinnar um að koma fram og segja frá framhjáhaldinu.Sjá einnig: Lögmaður Trump segist hafa borgað klámmyndaleikkonu úr eigin vasa. Tilefni ummæla Cohen er að yfirkjörstjórn Bandaríkjanna og Dómsmálaráðuneytið hafa verið beðin um að kanna hvort að greiðslan hafi komið úr kosningasjóði Trump og hvort hún hafi verið ólögleg. Gina Rodriguez, umboðsmaður Clifford, segir ljóst að ummæli Cohen hafi fellt samkomulag þeirra úr gildi og að skjólstæðingur sinn ætli að segja sögu sína.
Donald Trump Mest lesið Óður hundur réðst á tvo í Grafarvogi Innlent „Fólk er einfaldlega hrætt“ Erlent Leitin að Slater blásin af Erlent „Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur“ Innlent Ferðamaður sofnaði undir stýri og ók á rútu Innlent Myndir frá eldsvoðanum í Húsafelli í nótt Innlent Hjólhýsi fauk af veginum í Borgarfirði Innlent Fleiri foreldrar í vanda með máluppeldi en áður Innlent Öflugur skjálfti í Bárðarbungu Innlent Grafarvogsbúar þurfi ekki að óttast blokkir Innlent Fleiri fréttir Franska þjóðfylkingin leiðir eftir fyrstu tölur Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum Sakfelldur fyrir að myrða Emilie Meng Þakið á flugvelli í Nýju Delí hrundi vegna mikillar rigningar Biden hikandi og hás í fyrri kappræðum kosninganna Bein útsending: „Óvinsælustu frambjóðendur sem boðið hefur verið upp á“ Tilnefna Ursulu til að sitja fimm ár í viðbót Færeysku og grænlensku bætt við Google Translate Trump getur ekki gripið fram í fyrir Biden í nótt Krafa um hraða vaxtalækkun og Tækniskólinn rís í Hafnarfirði Fyrstu kappræðurnar í fjögur ár gætu skipt sköpum Eldur kviknaði í ráðuneyti Vill varúðarmerkingar á gjörunna matvöru Herforingi handtekinn eftir valdaránstilraun Valdaránstilraunin virðist hafa mistekist Segir hermennina hafa traðkað á skotsárum sínum Óttast valdaránstilraun í Bólivíu Sjá meira