Lífið

Davidson tjáir sig í fyrsta sinn um sambandsslit hans og Grande

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Davidson og Grande meðan allt lék í lyndi.
Davidson og Grande meðan allt lék í lyndi. Vísir/Getty
Bandaríski grínistinn Pete Davidson braut í gær þögnina um sambandsslit hans við stórsöngkonuna Ariönu Grande í þættinum Judd & Pete for America, en í síðustu viku var tilkynnt um að parið fyrrverandi hafi slitið samvistum og bundið enda á trúlofun sína.

Davidson ræddi sambandsslitin við grínistann Judd Apatow og sló á létta strengi um málið.

„Eins og þið sjáið þá langar mig ekkert að vera hérna. Það er mikið í gangi. Er einhver með laust herbergi? Vantar einhvern herbergisfélaga?“

Meðan á sambandi Davidson og Grande stóð bjuggu þau saman í íbúð söngkonunnar í New York, en hún er metin á 16 milljónir Bandaríkjadala, eða tæplega 1,9 milljarða íslenskra króna. Samkvæmt heimildum afþreyingarmiðilsins E! dvelur Davidson nú hjá fjölskyldu sinni og kveðst „hafa það fínt.“

Þá talaði Davidson um húðflúr sem hann er með en þau tengjast mörg hver sambandi hans við Grande. Hann segist nú vera að vinna í að láta hylja þau eða breyta.

 

 

 
 
 
View this post on Instagram
Swingin left with Judd and friends. Sweet Pete Davidson #petedavidson #juddapatow #swingleft #takebackthehouse

A post shared by Largo (@largolosangeles) on Oct 20, 2018 at 9:23pm PDT


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.