Lana del Rey breytti lagatextum og skaut á Radiohead eftir lögsóknina Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 8. janúar 2018 13:30 Thom Yorke er söngvari Radiohead sem lögsótt hefur Lönu del Rey fyrir lagastuld. Vísir/Getty
Söngkonan Lana del Rey nýtti tækifærið á tónleikum hennar í Denver í gær og skaut á bresku hljómsveitina Radiohead sem kært hefur söngkonuna fyrir lagastuld. Hnýtti hún í Radiohead með breyttum lagatextum auk þesss sem hún ræddi stuttlega um lögsóknina.Greint var frá lögsókninni í gær en Radiohead telur að lag hennar„Get Free“ sé svo keimlíkt laginu þeirra „Creep“ að það sé augljóslega stolið. Staðfesti söngkonan orðróma um lögsóknina á Twitter í gær þar sem hún sagði að hún hefði boðið þeim fjörutíu prósent af höfundarréttargreiðslum lagsins, þeir vilji hins vegar 100 prósent og muni deilan verða útkljáð fyrir dómstólum.Lana del Rey, sem er á tónleikaferðalagi um heiminn, hélt tónleika í Denver í Bandaríkjunum í gær og miðað við myndbrot sem tónleikagestir hafa birt á samfélagsmiðlum í dag má ljóst telja að lögsóknin sé bandarísku söngkonunni ofarlega í huga. Vísaði hún minnst tvisvar í deiluna um höfundarréttinn með því að breyta lagatextum.Í laginu „Pretty When You Cry“ strax í upphafi tónleikanna söng hún eftirfarandi línur:But I don't really mind, I've so much more than that Like my copyright, I don't need that. Í stað hins upprunalega texta sem lítur svona út:But I don't really mind, I've got my drugs and that Like my memories, I don't need that. Með orðinu copyright sem á íslensku þýðir höfundarréttur virðist söngkonan því hafa verið að vísa beint í deilu hennar við Radiohead en upptöku af laginu má sjá hér að neðan.Lana Del Rey just ended Radiohead at her concert in Denver right now! pic.twitter.com/OFLzIve93b— W I L D F O R LANA (@WILDFORLDR) January 8, 2018 Síðar á tónleikunum skaut hún töluvert fastar á bresku hljómsveitina en í laginu „Ride“ breytti hún texta lagsins og gaf þannig líklegast til kynna að lagið Creep væri eina vinsæla lag hljómsveitarinnar og þeirra helsta tekjulind:Don't break me down I've been travelin' too long I've been trying to get by on only one hit song. Upprunalegi textabúturinn er svona:Don't break me down I've been travelin' too long I've been trying to get With one pretty song. Myndband af laginu má sjá hér að neðan þegar um ein mínúta er liðin af myndbandinu.Á tónleikunum ávarpaði söngkonan einnig tónleikagesti sem bauluðu hressilega þegar hún minntist á Radiohead og lögsóknina. Svo virðist sem að mögulegt sé að lagið Get Free verði tekið af næstu útgáfum plötunnar Lust For Life vegna deilunnar. „Ég vil bara segja ykkur að hvað svo sem gerist í dómstólnum að tilfinningin í þessu tiltekna lagi, sem var persónuleg stefnuyfirlýsing fyrir plötuna, ég mun eltast og berjast fyrir þessari tilfinningu, jafnvel þó að lagið verði ekki á næstu útgáfum plötunnar,“ sagði söngkonan á tónleikunum líkt og sjá má hér fyrir neðan.Lana Del Rey talking about "Get Free" and her lawsuit with Radiohead at the Pepsi Center in Denver tonight #LAtotheMoonTour pic.twitter.com/AxSi2UFlmn— LA to the Moon Tour (@LAtotheMoonNews) January 8, 2018 Lagið Creep er líklega þekktasta Radiohead og það lag sem skaut hljómsveitinni á stjörnuhimininn þegar það kom út árið árið 1993. Lagið varð ofurvinsælt út um allan heim og er eitt þekktasta lag tíunda áratugs síðustu aldar. Meðlimir sveitarinnar högnuðust vel á vinsældunum og kallaði Thom Yorke meðal annars húsið sem hann keypti árið 1994 „húsið sem Creep byggði“.Ýmsir hafa þó bent á að ákveðin hræsni sé fólgin í lögsókn Radiohead á hendur söngkonunni þar sem þeir sjálfir sömdu við höfunda lagsins The Air That I Breath sem The Hollies gerðu frægt á áttunda áratug síðustu aldar vegna líkinda á milli lagsins og Creep. Eru þeir Albert Hammond og Mike Hazlewood skráðir sem meðhöfundar Creep og fá þeir hluta þeirra tekna sem lagið aflar. Owen Pallett, sem helst er þekktur fyrir samstarf sitt með Arcade Fire, hefur bent á að ef lögsókn Radiohead byggi á þeim tiltekna hljómagangi sem finna megi bæði í Creep og lagi Lönu Del Rey sé hann svo algengur að réttast væri að fara í gegnum söngbók Radiohead til þess að komast að því hverju hljómsveitin hafi stolið í gegnum tíðina.WowIf Radiohead are claiming ownership to I-III-IV-iv, we should go through Radiohead's catalogue and litigate their own lifts https://t.co/plqA5s4w2e— waluigi: my wah (@owenpallett) January 7, 2018 Ljóst er að deilan mun halda áfram en hér að neðan má heyra lögin tvö sem deilt er um.
Tónlist Tengdar fréttir Þegar Radiohead hélt bestu tónleika sögunnar Og það breytti öllu. 28. janúar 2016 10:30 Hljómsveitin Radiohead kærir Lönu Del Rey fyrir lagastuld Lag Lönu, Get Free, minnir óneitanlega á lagið Creep með Radiohead. 7. janúar 2018 18:55 Sjáðu Radiohead taka Creep í fyrsta skipti á tónleikum í sjö ár Breska sveitin Radiohead er nú á tónleikaferðalagi og spilar til að mynda á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í Laugardalnum nú í júní. 24. maí 2016 20:55 Það varð allt vitlaust þegar Radiohead tók Creep - Myndband Tónleikagestir tóku vel undir. 17. júní 2016 00:01 Mest lesið Dagbók móður: „Það var eins og þeir sæju eitthvað sem ég sá ekki” Áskorun Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Jólagjöf ársins er stóllinn sem getur allt nema flogið Lífið Króli trúlofaður Lífið Brostnar væntingar á Frostrósum Gagnrýni Besta jólagjöfin að sjá bata foreldranna Lífið Áreittar í sundi fyrir það að vera hinsegin Menning „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Lífið Guðmundur „ofpeppaðist“ og reif sig á kassann Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Fleiri fréttir Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Live in a fishbowl: Stórvinir X-ins í Brain Police rifu þakið af húsinu Live in a fishbowl: Alvöru harðkjarnapönk í boði I adapt Hélt tryllt tónlistarteiti og eignaðist svo tvíbura Breyta japönskum dúett í íslenskt jólalag Landslið tónlistarmanna mætti þegar Maggi Eiríks var hylltur Fjölbreyttur hópur tónlistarfólks tilnefndur til Kraumsverðlauna Live in a fishbowl: Spacestation spilaði tónlist fyrir „fallegt fólk“ Uppáhalds jólalögin: Munkadjamm og jólaleg sambandsslit Kunna ekki að slaka á og heyrðu í Svölu Björgvins Live in a fishbowl: Dr. Gunni alltaf á leiðinni til að drepa þig „Látið jólaljós ykkar skína skært“ Auður einhleypur og skýtur á yfirvöld vegna Yazans Fyrstur kemur, fyrstur fær: Magnúsi Eiríkssyni fagnað og þjóðinni boðið Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinu Daði Freyr tekur stefnuna til Íslands eftir áratug úti Fred again í sal en ekki á sviði: „Orðrómur sem við höfðum enga stjórn á“ „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi Sjá meira
Hljómsveitin Radiohead kærir Lönu Del Rey fyrir lagastuld Lag Lönu, Get Free, minnir óneitanlega á lagið Creep með Radiohead. 7. janúar 2018 18:55
Sjáðu Radiohead taka Creep í fyrsta skipti á tónleikum í sjö ár Breska sveitin Radiohead er nú á tónleikaferðalagi og spilar til að mynda á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í Laugardalnum nú í júní. 24. maí 2016 20:55
Það varð allt vitlaust þegar Radiohead tók Creep - Myndband Tónleikagestir tóku vel undir. 17. júní 2016 00:01