Lífið

„Ég á ekki að skammast mín“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Miley Cyrus og unnusti hennar, Liam Hemsworth, í Óskarssamkvæmi þann 4. mars síðastliðinn. Vanity Fair, tímaritið sem birti hina umdeildu ljósmynd, stóð að samkvæminu.
Miley Cyrus og unnusti hennar, Liam Hemsworth, í Óskarssamkvæmi þann 4. mars síðastliðinn. Vanity Fair, tímaritið sem birti hina umdeildu ljósmynd, stóð að samkvæminu. Vísir/Getty
Bandaríska söngkonan Miley Cyrus vakti nokkra athygli í vikunni fyrir að afturkalla afsökunarbeiðni sem hún gaf út árið árið 2008 vegna umdeildrar ljósmyndar. Cyrus útskýrði afstöðu sína enn frekar í spjallþættinum Jimmy Kimmel Live á þriðjudagskvöld og ítrekaði að hún ætti ekki að þurfa að skammast sín fyrir myndina.

Ljósmyndin umtalaða, sem tekin var af hinum heimsfræga ljósmyndara Annie Leibovitz, birtist í tímaritinu Vanity Fair árið 2008. Myndin var gríðarlega umdeild á sínum tíma en á henni sést Cyrus, sem þá var 15 ára, með bert bak og þótti mörgum umgjörðin allt of kynferðisleg.

Í kjölfarið gaf Cyrus út afsökunarbeiðni þar sem hún sagðist skammast sín fyrir þátttöku sína í myndatökunni, sem hefði átt að vera „listræn.“

Nú hefur Cyrus hins vegar dregið afsökunarbeiðnina til baka en hún birti tíst þess efnis á Twitter-reikningi sínum í vikunni.



Hún skýrði nánar frá þessu í viðtali við spjallþáttastjórnandann Jimmy Kimmel í gærkvöldi.

„Einhverjum fannst að mér hefði orðið á í messunni en mér finnst óréttlátt að fólk bregðist þannig við og segi þetta mína skömm, og að ég eigi að skammast mín,“ sagði Cyrus.

Þá bætti Cyrus við að á sínum tíma hafi hún viljað stöðva umfjöllun um málið og að hún hafi einnig verið að átta sig á því hvað fælist í því að vera fyrirmynd. Árið 2008, þegar myndin var tekin, var Cyrus á hátindi ferils síns sem stjarna barna- og unglingaþáttanna Hannah Montana.

Cyrus þvertók einnig fyrir að kynferðislegt yfirbragð hefði verið á myndatökunni.

„Það var ekkert kynferðislegt við þetta á tökustað og það var eitrað hugarfar annarra sem breytti þessu í eitthvað sem það átti aldrei að vera. Þannig að í raun á ég ekki að skammast mín, heldur þau,“ sagði Cyrus en viðtalið má sjá í heild hér að neðan.




Tengdar fréttir

Sjáðu Miley Cyrus taka kántríútgáfu af See You Again

Cyrus sem er dóttir kántrísöngvarans þekkta Billy Ray Cyrus er kannski ekki þekkt fyrir framlag sitt til kántrítónlistar en ljóst er að hún á ekki langt að sækja hæfileikana. Á dögunum tók hún upp kántríútgáfu af laginu See You Again og hefur fengið mikið lof fyrir flutninginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.