Íslenskir sundbolir og saltskrúbbur sameinast í fallegri sýningu Ritstjórn skrifar 20. mars 2018 11:23 Erna Bergmann, Íris Ósk Laxdal, Arnbjörg Kristín, Elísabet og Íris Dögg Einarsdóttir að lokinni sýningu. Mynd:Berglaug
Íslenska sundbolamerkið Swimslow hélt sýningu í samstarfi við húðvörumerkið Angan Skincare á HönnunarMars. Sýningin fór fram í Natura Spa þar sem sundbolirnir fengu að njóta sín í viðeigandi umhverfi. Sýningin var upplifunargjörningar þar sem áhorfendum gafst kostur á að kynnast vörumerkjunum báðum í athöfn sem veitti allt í senn slökun og núvitund. Saman deila Swimslow og Angan Skincare sýn á að miðla arfleið baðmenningu Íslendinga en í gegnum aldirnar hafa Íslendingar baðað sig í jarðhitalaugun og hafið og náttúran ávallt spilað stóra þátt í menningu okkar. Íris Ósk Laxdal er stofnandi og hönnuður Angan Skincare og Erna Bergmann stofnandi og hönnuður Swimslow en bæði vörumerkin eiga það sameiginlegt að vera sjálfbær. Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir lék á gong, en förðun og hár var í höndunum á Reykjavík Make Up School með vörum frá MAC og Bryndísi Helgadóttur með vörum frá Davines. Neðst í fréttinni má sjá albúm með myndum frá viðburðinum sem Berglaug ljósmyndari tók. Við látum líka fylgja myndir frá myndatöku með Írisi Dögg Einarsdóttur ljósmyndara sem teknar voru á Vestfjörðum með fyrirsætunni Matthildi Matthíasdóttur. Mynd: Íris Dögg EinarsdóttirMynd: Íris Dögg EinarsdóttirMynd: Íris Dögg Einarsdóttir
HönnunarMars Tíska og hönnun Mest lesið Dressin á Teen Choice Awards Glamour Bleikir samfestingar og kúrekastígvél Glamour Kanye West enn og aftur andlit Balmain Glamour Penelope Cruz mun leika Donatellu Versace Glamour Nær skautadrottningunni umdeildu vel Glamour Nostalgíukast í eftirpartýi H&M og Balmain Glamour Cara Delevingne ýtir undir orðróm um trúlofun Glamour Skálað fyrir hönnun Glamour Jeremy Scott kærður aftur fyrir hugmyndastuld Glamour Tveir nýjir varalitir frá Kendall Glamour