Komandi gamlárskvöld verður það síðasta þar sem almenningi í Svíþjóð gefst færi á að fagna nýju ári með því að skjóta upp rakettum án þess að fá til þess sérstakt leyfi.
Frá og með júní á næsta ári þurfa að einstaklingar í Svíþjóð að sækja námskeið og fá sérstakt leyfi frá yfirvöldum til að kaupa slíka flugelda.
SVT segir frá því að það hafi verið Samtök söluaðila flugelda í Svíþjóð sem hafi þrýst á breytinguna. Erik Nilsson, formaður samtakanna, segir að hlutfall þáttar raketta þegar kemur að slysum á fólki hafi verið óeðlilega hátt.
„Við höfum líka séð þróunina í Noregi þar sem þetta var gert fyrir næstum tíu árum síðan. Þar fækkaði slysum á fólki kröftuglega,“ segir Nilsson.
Svíar hafa jafnt og þétt þrengt að notkun flugelda, en árið 2002 voru svokallaðir „Kínverjar“ bannaðir og fyrir fjórum árum var lagt bann við stærri rakettum.
Rúmlega fjögur hundruð manns hafa slasast alvarlega vegna notkunar flugelda í Svíþjóð á síðustu fimmtán árum.
