Lífið

Sonur Johnny Depp alvarlega veikur

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Johnny Depp á tónleikum í London í síðustu viku.
Johnny Depp á tónleikum í London í síðustu viku. Vísir/Getty
16 ára sonur Johnny Depp og Vanessu Paradis glímir nú við alvarleg veikindi. Paradis mætti þess vegna ekki á frumsýningu nýjustu myndar sinnar á þriðjudag, A Knife In The Heart. Hún hefur þó ekki tjáð sig um það um hvernig veikindi sé að ræða. 

Allur leikarahópurinn var saman á frumsýningunni í París en Yann Gonzalez leikstjóri myndarinnar sagði að Paradis væri hjá veikum syni sínum. Samkvæmt franska miðlinum Public sagði hann við blaðamenn:

„Því miður gat Vannessa Paradis ekki verið með okkur hér í kvöld, hún þurfti að vera fjarverandi vegna alvarlegra heilsufarslegra vandamála sonar síns.“

Vanessa Paradis á Cannes hátíðinni þar sem hún kynnti nýjustu mynd sína.Vísir/Getty
John Christopher Depp III er fæddur árið 2002 og er alltaf kallaður Jack. Lily Rose Depp systir hans veiktist alvarlega árið 2007. Nýrun hennar hættu að virka eftir alvarlega sýkingu og dvaldi hún nokkrar vikur á sjúkrahúsi. Árið 2016 sagði Depp í ræðu að í þrjár vikur hafi hann ekki vitað hvort Lily Rose myndi lifa af.

Depp er í augnablikinu á tónleikaferðalagi með hljómsveit sinni Hollywood Vampires. Hann var myndaður fyrir utan hótel í Þýskalandi í gær svo hugsanlega ætlar hann ekki að vera hjá Jack í þessum veikindum.

Jack með föður sínum fyrir nokkrum árum.Vísir/Getty
Eins og kom fram á Vísi á dögunum er leikarinn sagður einmanna maður á villigötum, í nýju ítarlegu viðtali í tímaritinu Rolling Stone. Þar er einnig talað um að hann sé illa staddur fjárhagslega og standi í lögsókn við fyrrverandi viðskiptastjóra sinn. Hann ræðir einnig um þunglyndi og að á tónleikaferðalaginu hafi hann fengið sér vodka á morgnana og skrifað þangað til augu hans fylltust af tárum og hann sá ekki blaðsíðuna lengur.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.