Fótbolti

Sumarmessan: Ronaldo og Mbappe meðal bestu spretta mótsins

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sumarmessan var á sínum stað á Stöð 2 Sport í gærkvöldi en strákarnir gerðu upp tvo leiki í 16-liða úrslitunum.

Þeir litu einnig aðeins yfir öxl og litu á bestu sprettina í keppninni. Nokkrir rosalegir sprettir hafa litið dagsins ljós og strákarnir sýndu nokkra.

„Það hafa komið alveg sóðalegir sprettir á HM það sem af er,” sagði Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur þáttarins.

Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður og annar spekingur þáttarins, tók undir þetta og sagði Ronaldo varla vera að reyna á sig til þess að hlaupa svona hratt.

Innslagið má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×